Sevilla fyrsta liðið í 16-liða úrslitin Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 20. febrúar 2019 18:45 Úr fyrri leik liðanna. vísir/getty Sevilla er fyrsta liðið til þess að tryggja sér sæti í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar eftir 2-0 sigur á Lazio. Heimamenn voru í ágætum málum eftir fyrri leikinn sem þeir unnu 1-0 í Ítalíu. Wissam Ben Yedder fór langt með að tryggja sætið þegar hann skoraði fyrir Sevilla á 20. mínútu og voru heimamenn með eins marks forystu í hálfleik. Eftir klukkutíma leik fékk Franco Vazquez sitt annað gula spjald og var sendur af velli með rautt spjald. Gestirnir fengu þó ekki langan tíma til þess að njóta liðsmunarins því Adam Marusic fékk beint rautt spjald tíu mínútum síðar. Pablo Sarabia kláraði svo leikinn og einvígið með öðru marki Sevilla á 78. mínútu. Sevilla vann leikinn því 2-0 og einvígið samtals 3-0. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti