Lífið

Þýskalandskanslari hættir á Facebook

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Merkel ætlar að segja skilið við Fésbókina.
Merkel ætlar að segja skilið við Fésbókina. Sascha Schuermann/Getty
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, tilkynnti í dag í myndbandi á Facebook-síðu sinni að hún hygðist segja skilið við miðilinn.

Merkel hefur lýst því yfir að hún hyggist ekki sækjast eftir endurkjöri sem kanslari Þýskalands í næstu kosningum og hefur þegar látið af störfum sem formaður flokks síns, Kristilegra demókrata.

„Í dag vil ég þakka ykkur fyrir stuðning ykkar við Facebook-síðu mína,“ segir Merkel meðal annars í myndbandinu.

„Þið vitið að ég er ekki lengur formaður Kristilegra demókrata og þess vegna mun ég loka Facebook-síðunni minni.“





Síðasta færsla Merkel á Facebook var myndband af ræðu hennar á landsfundi Kristilegra demókrata í desember, þar sem hún lét formlega af störfum sem formaður flokksins. Virkni hennar á miðlinum hefur því verið lítil sem engin upp á síðkastið.

Aðdáendur kanslarans þurfa þó ekki að hafa áhyggjur af því að Merkel hverfi alfarið af sviði samfélagsmiðla, en í myndbandinu hvatti hún fólk til þess að fylgjast áfram með störfum hennar á opinberri Facebook-síðu þýsku ríkisstjórnarinnar.

Merkel hyggst einnig halda áfram að sinna samfélagsmiðlum í gegnum Instagram-síðu sína. Fyrr í vikunni bárust fréttir af því að íslenski þrifsnapparinn Sólrún Diego væri hætt á samskiptamiðlinum Snapchat en hygðist halda sig áfram á Instagram, eða „Gramminu,“ eins og það er oft þekkt í daglegu tali hér á landi.

Það er því ljóst að Instagram virðist vera miðillinn sem stórstjörnurnar halda hvað mestri tryggð við.


Tengdar fréttir

Söguleg stund þegar Angela Merkel steig úr formannsstól

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hélt í gær sína síðustu ræðu sem formaður Kristilegra demókrata. Hún mun þó áfram sitja sem kanslari til loka kjörtímabils. Merkel sagði flokkinn hafa breyst mikið í átján ára formannstíð hennar og að næsta formanns biðu erfið verkefni.

Sólrún Diego hætt á Snapchat

Þrifsnapparinn Sólrún Diego er hætt á Snapchat en hún greindi fylgjendum sínum frá þessu á miðlinum fyrir stundu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.