Menning

Baltasar snýr aftur í Þjóðleikhúsið

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Baltasar Kormákur hefur verið með annan fótinn vestan hafs undanfarin misseri.
Baltasar Kormákur hefur verið með annan fótinn vestan hafs undanfarin misseri. Vísir/Vilhelm
Þjóðleikhúsið og Baltasar Kormákur leggja nú drög að því að sviðsetja Villiöndina eftir Henrik Ibsen, en fyrirhugað er að frumsýna verkið næsta leikár. Um er að ræða fyrstu leikstjórn Baltasars á sviði í á níunda ár.

Baltasar hefur leikstýrt fjölda leiksýninga í Þjóðleikhúsinu og víðar. Vegna anna við kvikmyndaleikstjórn og -framleiðslu í Bandaríkjunum og á Íslandi hefur hann ekki getað sinnt leikstjórn í leikhúsi frá því hann setti upp Gerplu í Þjóðleikhúsinu árið 2010.

Meðal rómaðra leikstjórnarverkefna Baltasars í Þjóðleikhúsinu eru Þetta er allt að koma, Pétur Gautur, Ívanov, Leitt hún skyldi vera skækja, Hamlet, RENT og Draumur á Jónsmessunótt, en hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir leikstjórn sína á Þetta er allt að koma og Pétri Gaut.

Villiöndin var frumflutt árið 1885 og er af mörgum talið eitt allra besta leikrit norska skáldjöfursins Henriks Ibsens, og var síðast sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 1996. Villiöndin er tragíkómískt verk þar sem sem sálfræðilegt innsæi skáldsins og hæfileiki til að greina mannlegan veruleika njóta sín til fulls.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.