Breti handtekinn vegna banaslyss á Thames eftir hálft ár á flótta Atli Ísleifsson skrifar 23. janúar 2019 21:25 Jack Shepherd var handtekinn í Georgíu. EPA
Lögregla í London segir að breskur karlmaður, sem hafði hlotið dóm fyrir að hafa orðið konu að bana í slysi á ánni Thames, hafi verið handtekinn í Georgíu. Jack Shepherd lagðist á flótta skömmu áður en dómurinn var kveðinn upp í júlí á síðasta ári og hafði hans verið leitað í um hálft ár. Shepherd var í júlí síðastliðinn dæmdur að honum fjarverandi í sex ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Var hann valdur að láti hinnar 24 ára Charlotte Brown. Í yfirlýsingu frá bresku rannsóknarlögreglunni Scotland Yard segir að Jack Shepherd hafi verið handtekinn og væri nú í haldi lögreglunnar í Georgíu. Hafi hann gefið sig fram við lögreglu. Gefin hafði verið út alþjóðleg handtökuskipun á hendur honum og er nú unnið að því að fá hann framseldan til Bretlands.Charlotte Brown var 24 ára þegar hún lést.LundúnalögreglanReuters segir frá því að Shepherd hafi farið með Brown á þeirra fyrsta stefnumót í desember 2015. Hafi þau farið út að borða á veitingastað í hæstu byggingu London, The Shard, áður en hann bauð henni í ferð á ánni Thames um borð í hraðbáti í hans eigu. Saksóknarar sögðu Shepherd hafa verið ölvaðan þegar hann stýrði bátnum og lenti í slysinu. Hvorki hann né Brown voru klædd í björgunarvesti þegar slysið varð og þau köstuðust þau bæði í ána. Shepherd tókst að bjarga sér en Brown drukknaði.
Bretland England Georgía Mest lesið „Það munaði minnstu að þeir dræpu mig“ Innlent Bann gegn einkaþotum og þyrlum samþykkt Innlent Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur Innlent Vaktin: Eldgos hafið nærri Grindavík Innlent „Er líf okkar ekki jafn mikils virði og þeirra í Reykjavík?“ Innlent Skipað í nýja Grindavíkurnefnd Innlent Gosið í dag bara smá leki úr kvikuganginum Innlent „Haugalygi að ég hafi ógnað einhverjum með byssu“ Innlent Neituðu að rýma: „Við viljum fá að vera í friði“ Innlent Ekið á gangandi vegfaranda Innlent Fleiri fréttir Lýsa yfir vikulangri þjóðarsorg Regnbogafánar bannaðir í skólum og ríkisstofnunum Færri ánægðir með Trump og efnahagsmálin Sakar Rússa um tugi þúsunda stríðsglæpa „Ekki að grínast“ um þriðja kjörtímabilið Einn sagður hafa drepið hina tvo Hafa enn ekki náð utan um skaðann í Mjanmar ESB sagt íhuga að útvatna loftslagsmarkmið sín Morð í Svíþjóð ekki eins fá í áratug Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram til forseta Fordæma árás á sjúkraliða Þrír fundust látnir í Noregi „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Trump „mjög reiður“ út í Pútín Þýsk geimflaug hrapaði eftir hálfa mínútu Erfitt að átta sig á áformum Trumps „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Fundu fólk í rústunum sextíu klukkustundum eftir skjálftann Kærir Musk til hæstaréttar vegna milljónagjafa til kjósenda „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Sjá meira