Sjáðu hvernig „Víkingahugarfarið“ hjá Martin bjargaði Alba Berlin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2019 13:30 Martin Hermannsson. Mynd/Instagram/albaberlin
Íslenski körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson átti magnaðan leik með Alba Berlin i Evrópukeppninni í vikunni í sigri á litháíska liðinu Rytas Vilnius. Alba Berlin vann leikinn 87-85 en útlitið var bjart þegar Rytas Vilnius var 21 stigi yfir, 60-39, í upphafi seinni hálfleiks. Þýska liðið átti hins vegar íslenska ás upp í erminni og Martin Hermannsson jafnaði metin nánast upp á eigin spýtur þegar hann skoraði 17 stig Alba liðsins í röð. Martin endaði síðan leikinn á því að tryggja Alba sigurinn á vítalínunni. Hann var með 25 stig á 24 mínútum og hitti úr 6 af 8 þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Alba Berlin setti inn myndband á fésbókarsíðu sína um þessa frammistöðu íslenska landsliðsmannsins og talar þar um „Víkingahugarfarið“ eins og sjá má hér fyrir neðan. Þar má sjá Martin raða niður þriggja stiga skotunum. Alba Berlin komst á topp E-riðilsins í EuroCup með þessum sigri. Martin er með 15,8 stig að meðaltali í leik og hefur hitt út 56 prósent þriggja stiga skotanna og 92 prósent vítanna. Hann er líka búinn að gefa 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Þessi 25 stig eru það mesta sem Martin hefur skorað í einum leik fyrir Alba Berlin en það er gaman að sjá að Martin hefur náð sér fullkomlega af meiðslunum og er klár í að taka enn eitt stóra skrefið á sínum ferli.
Körfubolti Mest lesið „Viðbjóðsleg“ frammistaða sem lætur stjóra missa starfið Enski boltinn „Væri gaman að spila við þá í hverri einustu viku” Íslenski boltinn Fær Njarðvík frekar stimpilinn? Íslenski boltinn Stillti upp fartölvu til að mótmæla Fótbolti Tap hjá Sverri í Aþenuslagnum Fótbolti Ólæti vörpuðu skugga á dramatískan borgarslag Fótbolti Uppgjörið: Valur - Víkingur 2-3 | Draumamark Tariks kom Víkingi á toppinn Íslenski boltinn Guðmundur og Arnór fögnuðu góðum sigri Handbolti „Gleymist að við tókum líka Kjarnafæðisbikarinn og getum unnið þrefalt“ Sport Uppgjörið: KR - Fram 7-1 | Benóný Breki og KR með sýningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi með tíu í fyrsta leik Valsmenn neituðu að veita viðtöl „Mátti þetta ekki í Þýskalandi“ Martin magnaður í fyrsta sigrinum „Einhver náttúrulegasta þrenna sem ég hef séð“ Uppgjörið: Valur - Keflavík 88-98 | Öruggt hjá Keflavík og Finnur rekinn úr húsi Uppgjörið: Keflavík - Þór Ak. 82-86 | Þór skellti meisturunum Knicks og Timberwolves opna leikmannamarkaðinn með látum Ísold eltir annan draum: „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka í lífinu“ Tryggvi Snær í riðlakeppni Evrópubikarsins Pavel: „Ég var brjálaður vísindamaður“ Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Sjá meira