Fá aðgang að síma sem er talinn innihalda myndir af árás Birgir Olgeirsson skrifar 28. janúar 2019 16:27 Landsréttur er staðsettur í Kópavogi. Vísir/Vilhelm
Landsréttur hefur heimilað embætti lögreglustjórans á Vesturlandi að rannsaka efnisinnihald farsíma manns sem er grunaður líkamsárás og kynferðislega áreitni í félagi við aðra í ágúst árið 2016. Er síminn talinn innihalda ljósmyndir af árásinni. Þegar lögreglan reyndi að opna símann, með heimild mannsins, reyndist uppgefið pin-númer rangt. Neitaði maðurinn að gefa upp rétt pin-númer símans og sagðist ekki muna það. Var það talin ótrúverðug skýring þar sem síminn hafi verið í notkun þegar hann var haldlagður. Eru mennirnir grunaðir um að hafa haldið manninum, snúið upp á hendur hans og slegið hann. Samkvæmt framburði vitnis á einn mannanna að hafa tekið myndir af því og síminn því nauðsynlegur við rannsókn málsins og geta brotin að sögn lögreglu varðað fangelsisrefsingu. Úrskurð Landsréttar má sjá hér.
Dómsmál Mest lesið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Erlent Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Innlent Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Fleiri fréttir Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Lygileg atburðarás í Landsbankanum Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Öryggisógn í Eystrasaltinu og óskiljanlegur „gjörningur“ lögreglu Tveir bílar rákust saman á brúnni við Fossála Veit vel að önnur kjör en laun þurfi að ræða Hætta leitinni í Meradölum Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Súðavíkurhlíð opin á ný Leit við Meradali í snælduvitlausu veðri Búið að opna Holtavörðuheiði á ný Þungar vikur framundan Skilaréttur neytenda ríkari ef varan er keypt á netinu Lögregla hafi hálfpartinn „hrökklast frá“ Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Grímuskylda og ósáttir vínsalar Holtavörðuheiði enn lokuð Reyndu að ræna hraðbanka Komu hesti til bjargar úr gjótu Icelandair skoðar næstu skref í þróun flugflotans Áfram töluverð snjóflóðahætta á Vestfjörðum Áfengissala á helgidögum þjóðkirkjunnar stöðvuð af lögreglu Snjóflóðahætta á Vestfjörðum og frumsýning Yermu Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sjá meira