Lífið

Heilsuæðið Keto gerir allt vitlaust

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þorbjörg hefur kynnt sér Keto töluvert.
Þorbjörg hefur kynnt sér Keto töluvert.
Nýjasta heilsuæðið í dag er svokallað Keto mataræði. Það hefur notið gríðarlega vinsælda um allan heim.

Frægar Hollywood stjörnur eins og Gwyneth Paltrow og Hally Berry og fleiri eru þekktar fyrir að vera á þessu fæði. Og hér á landi hefur til dæmis Keto bókin eftir Gunnar Má Sigfússon einkaþjálfara og heilsugúru slegið í gegn og námskeiðin hans eru mjög vinsæl.

Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og næringarþerapisti, hefur verið með vinsæl Keto námskeið ásamt sínum gríðarlega vinsælu Ljómandi námskeiðum.

En Þorbjörg er einnig með námskeiðin í Danmörku þar sem hún er landsþekkt bæði fyrir bækur sínar sem hafa slegið þar í gegn og einnig sjónvarpsþætti þar í landi.

Í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í gærkvöldi ræddi Vala Matt við Þorbjörgu um mataræðið og er þetta fyrri hluti af tveimur um Keto.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.