Björgvin kominn í annað sætið Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. desember 2018 11:16 Björgvin Karl Guðmundsson. Vísir/Daníel
Björgvin Karl Guðmundsson er kominn upp í annað sæti á alþjóðlega CrossFit mótinu í Dúbaí þegar þrjár keppnisgreinar eru eftir á mótinu. Björgvin Karl var aðeins tveimur stigum frá öðru sætinu fyrir lokadaginn í dag og náði hann að lyfta sér þangað upp með því að taka fjórða sætið í sjöundu grein mótsins. Björgvin kláraði æfingu sjö á 7:26 mínútum, um hálfri mínútu á eftir Mathew Fraser sem vann greinina og styrkti þar með stöðu sína á toppnum. Þegar þrjár æfingar eru eftir munar 57 stigum á Björgvini og Fraser, en Björgvin vann þetta mót í fyrra. Sæti á heimsleikunum í CrossFit er í boði fyrir sigurvegarann. Ragnheiður Sara Sigmundsdóttir varð í níunda sæti í grein sjö í morgun, kláraði æfinguna á 9:08 mínútum. Það var ótrúlega mjótt á mununum á toppnum í greininni en Jamie Greene sem vann hana var aðeins fjórum sekúndum á eftir Söru. Oddrún Eik Gylfadóttir varð sekúndu á eftir Söru og lenti í 13. sæti í greininni ásamt sjö öðrum. Sara er í þriðja sætinu heilt yfir í mótinu, 33 stigum á eftir Greene á toppnum. Oddrún Eik er í 11. sætinu, 145 stigum frá toppnum.Björgvin Karl Guðmundsson 1. grein: 4. sæti (85 stig) 2. grein: 4. sæti (85 stig) 3. grein: 7. sæti (73 stig) - er í 2. sæti með 243 stig 4. grein: 6. sæti (75 stig) - er í 3. sæti með 318 stig 5. grein: 2. sæti (95 stig) - er í 3. sæti með 418 stig 6. grein: 5. sæti (80 stig) - er í 3. sæti með 493 stig 7. grein: 4. sæti (85 stig) - er í 2. sæti með 578 stigRagnheiður Sara Sigmundsdóttir 1. grein: 1. sæti (100 stig) 2. grein: 16. sæti (55 stig) 3. grein: 9. sæti (69 stig) - er í 6. sæti með 224 stig 4. grein: 9. sæti (69 stig) - er í 4. sæti með 293 stig 5. grein: 2. sæti (95 stig) - er í 4. sæti með 388 stig 6. grein: 4. sæti (85 stig) - er í 3. sæti með 473 stig 7. grein: 9. sæti (69 stig) - er í 3. sæti með 542 stigOddrún Eik Gylfadóttir 1. grein: 15. sæti (57 stig) 2. grein: 8. sæti (71 stig) 3. grein: 8. sæti (71 stig) - er í 9. sæti með 199 stig 4. grein: 26. sæti (40 stig) - er í 13. sæti með 239 stig 5. grein: 4. sæti (85 stig) - er í 9. sæti með 324 stig 6. grein: 21. sæti (45 stig) - er í 12. sæti með 369 stig 7. grein: 13. sæti (61 stig) - er í 11. sæti með 430 stig
CrossFit Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Látnir æfa á jóladag Enski boltinn Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Fótbolti Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Handbolti Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka Enski boltinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu Enski boltinn „Allt er svo erfitt“ Enski boltinn Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Fótbolti Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Sport Fleiri fréttir Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Hrasaði viljandi og sló alla út af laginu Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Gísli fyrr heim í frí eftir árásina í Magdeburg Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Sagði frá eigin lyfjamisnotkun og er kominn í bann Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Beint af HM á sjúkrahús vegna sjaldgæfs taugasjúkdóms Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Dagskráin í dag: Það er pílan Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Cullen stormaði út af blaðamannafundi White og Littler mætast í 16-manna úrslitum Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Martin og félagar burstuðu botnslaginn Sjá meira