Hútar sakaðir um að beita fanga pyntingum Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 8. desember 2018 08:00 Hermenn Húta í höfuðborginni San'a í nóvember. Nordicphotos/AFP
Hútar, uppreisnarhreyfingin sem á í stríði við ríkisstjórn Abd Rabbuh Mansur al-Hadi, forseta Jemens, pyntar fanga sína. Þetta er fullyrt í umfjöllun AP sem byggir á rannsókn miðilsins í samstarfi við Pulitzer-stofnunina. Alls ræddi AP við 23 einstaklinga sem sögðust annaðhvort hafa sjálfir þurft að þola pyntingar Húta eða séð aðra verða fyrir þeim. Einnig var rætt við skyldmenni pyntaðra fanga, lögmenn, aðgerðasinna og þrjá löggæslumenn á vegum Hadi-stjórnarinnar sem sögðust hafa séð merki um pyntingar. Samtök kvenkyns skyldmenna fanga Húta hafa á skrá rúmlega 18.000 einstaklinga sem Hútar hafa tekið fasta. Þar af er talið að um þúsund hafi verið pyntaðir í leynilegum fangelsum og að 126 hið minnsta hafi dáið vegna pyntinga Húta frá því þeir tóku yfir höfuðborgina San’a síðla árs 2014. Leiðtogar Húta hafa áður neitað því að þeir hafi beitt pyntingum. Samkvæmt umfjöllun AP vildi enginn þeirra svara fyrirspurnum miðilsins. Friðarviðræður á milli Húta og Hadi-stjórnarinnar fóru fram í Svíþjóð í gær. Samkvæmt Reuters lögðu stjórnarliðar til að alþjóðaflugvöllurinn í Sana, sem Hútar halda, yrði opnaður á ný gegn því að leyfi fengist til að skoða allar þær flugvélar sem fara um flugvöllinn. Á fimmtudag var samþykkt að frelsa þúsundir fanga. Martin Griffiths, sáttasemjari á vegum SÞ, sagði að viðræðurnar byrjuðu vel.
Birtist í Fréttablaðinu Jemen Mest lesið Kári og Sveinn til liðs við Arnar Þór Innlent Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í Fellsmúla Innlent Starfsfólkið slegið eftir brunann Innlent Dæmi um að leikarar fái 1300 á tímann Innlent Fylgi Sjálfstæðisflokksins aldrei mælst minna Innlent Ljúfsár hinsta heimsókn í Blóðbankann Innlent Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Erlent Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Erlent Sigmundur góður sessunautur af því að hann mæti sjaldan Innlent Gestur greiðir ekki krónu þó að pallaolía hafi hellst í bílinn Innlent Fleiri fréttir Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Bann gegn betli á teikniborði Svía Bera hefndaraðgerðir undir Bandaríkin Sprengingar við ísraelska sendiráðið í Kaupmannahöfn Tuttugu skólabörn létust í eldsvoða í rútu í Taílandi Vance með yfirhöndina í kurteisum kappræðum Engar fregnir af mannfalli í Ísrael Netanyahu heitir hefndum Bein útsending: Walz og Vance hittast í fyrsta sinn Minnst sex látnir í skotárás í Tel Avív Fjöldi skotflauga lenti í Ísrael Segja eldflaugaárás frá Íran væntanlega Enn ein reikistjarnan í „bakgarði“ sólkerfisins Hækka fjárútlát til varnarmála um þriðjung Reyna að tengja Pelicot við fleiri nauðganir og morð Síðasta kolaorkuveri Bretlands lokað Ungt fólk býr lengst heima í Króatíu en styst í Finnlandi Hundrað ára eftir tæp tvö ár á banalegunni Trump lét sér ekki segjast og endurtók lygina Árásir Ísraelsmanna í Líbanon héldu áfram í nótt Rutte tekur við af Stoltenberg Ísraelsher ræðst inn í Líbanon Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Sjá meira