Fótbolti

Casillas: Ég hefði átt að standa upp í hárinu á Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Casillas og Mourinho.
Casillas og Mourinho. vísir/getty
Markvörðurinn Iker Casillas á ekki góðar minningar frá þeim tíma er Jose Mourinho var þjálfari Real Madrid. Samband þeirra var slæmt og Mourinho henti honum á bekkinn.

Mourinho var þjálfari Real frá 2010 til 2013. Á þeim tíma vann Real spænsku deildina einu sinni og spænska bikarinn sömuleiðis einu sinni.

Tímabilið 2011-2012 var einstaklega gott enda varð Real spænskur meistari þá. Liðið fékk 100 stig í deildinni og skoraði 121 mark. Samt var ekki eintóm gleði með portúgalska þjálfarann í borginni.

Mörgum stuðningsmönnum félagsins sárnaði að Mourinho skildi henda Casillas á bekkinn fyrir Diego Lopez. Portúgalinn er sagður hafa gert þar sem hann var óánægður með hversu náinn Casillas var leikmönnum Barcelona sem spiluðu með honum hjá spænska landsliðinu.

Svo komu líka fréttir um óróa innan herbúða félagsins. Að Mourinho væri að deila við ýmsa lykilmenn. Casillas var grunaður um þann leka.

„Hann átti að koma okkur fram fyrir Barcelona en hann bjó til mikla spennu hjá félaginu. Mér fannst hann líka ganga of langt gagnvart mér,“ sagði Casillas.

„Þriðja árið var alls ekki gott og mikil spenna í samböndum margra einstaklinga. Þetta var ekki gott fyrir hann, mig eða félagið. Ef þetta myndi gerast aftur myndi ég láta í mér heyra og standa upp í hárinu á honum.

„Ég tók þá ákvörðun að halda kjafti á sínum tíma. Það gerði ég af virðingu við gildi félagsins. Það hefur enginn enn viljað tala um þennan tíma Mourinho og kannski er betra að sleppa því bara alveg.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×