Innlent

Skipasali dró sér aflahlutdeild í eigu fyrrverandi tengdaföður

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Maðurinn neitaði sök og sagði að hann hefði unnið innan þeirra heimilda sem hann hafði. Það stangaðist á við vitnisburð fyrrverandi tengdaföður hans.
Maðurinn neitaði sök og sagði að hann hefði unnið innan þeirra heimilda sem hann hafði. Það stangaðist á við vitnisburð fyrrverandi tengdaföður hans. Fréttablaðið/GVA
Löggiltur skipasali á fimmtugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness fyrir tæpri viku dæmdur í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt. Refsingin er bundin skilorði sökum þess hve langan tíma saksókn þess tók.

Fjárdrátturinn fór fram með þeim hætti að maðurinn dró sér í fjórum tilvikum krókaaflahlutdeild í þorski sem var í eigu útgerðar sem fyrrverandi tengdafaðir hans átti. Ákærði hafði umsýslu með kvótanum. Aflamarkið seldi hann án heimildar fyrir rúmlega 28 milljónir króna. Stærstur hluti ávinningsins rann inn á reikning fyrirtækis mannsins en hluti á persónulegan bankareikning hans og fyrrverandi eiginkonu hans. Þá var hann einnig ákærður fyrir að hafa í þrígang leigt krókaaflamark, fyrir rúmlega milljón krónur, án heimildar og að hafa nýtt ávinninginn í eigin þágu. Brotin áttu sér stað árin 2013 og 2014.

Maðurinn neitaði sök og sagði að hann hefði unnið innan þeirra heimilda sem hann hafði. Það stangaðist á við vitnisburð fyrrverandi tengdaföður hans.

Aðalmeðferð málsins fór fram í mars síðastliðnum en ekki var kveðinn upp dómur áður en sumarleyfi dómara hófst. Var málið endurflutt í október.

Í niðurstöðu dómsins segir að ásetningur skipasalans hafi verið einbeittur og brot hans stórfelld. Brot hans voru kærð í júlí 2014 og lauk rannsókn í nóvember. Ákæra var hins vegar ekki gefin út fyrr en í júní 2017. Í ljósi þess var refsingin bundin skilorði. Maðurinn var dæmdur til að greiða allan sakarkostnað, rúmlega 3,5 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×