Innlent

Krefst frávísunar í „shaken baby“-máli

Aðalheiður Ámundadóttir skrifar
Sigurður Guðmundsson mætti í héraðsdóm með verjanda sínum til að hlýða á skýrslu dr. Squier árið 2014.
Sigurður Guðmundsson mætti í héraðsdóm með verjanda sínum til að hlýða á skýrslu dr. Squier árið 2014. Fréttablaðið/Ernir
Ríkissaksóknari fer fram á að svokölluðu „shaken baby“-máli verði vísað frá Hæstarétti þegar málið verður flutt þar 23. janúar næstkomandi.

Sigurður Guðmundsson var dæmdur fyrir manndráp af gáleysi árið 2003 fyrir að hafa hrist 9 mánaða gamlan dreng, sem hann hafði í daggæslu, þannig að hann lést. Fallist var á endurupptöku málsins árið 2015 og vó þar þyngst matsgerð bresks sérfræðings, dr. Waney Squier, sem taldi dánarorsök drengsins óljósa og engin ótvíræð gögn liggja fyrir um högg eða önnur merki um áverka sem hefðu getað orsakast af harkalegum hristingi.

„Allt virðist þetta vera sett fram í þeim eina tilgangi að rökstyðja þá trú Dr. Waney Squier að svokallað Shaken baby syndrome sé ekki til,“ segir í greinargerð saksóknara, en frávísunarkrafan byggir öðrum þræði á því að dr. Squier hafi verið bæði óábyrg og ónákvæm sem dómkvaddur matsmaður.

Dr. Squier er ekki óumdeild en hún var svipt lækningaleyfi í Bretlandi árið 2016 vegna meints misvísandi og óheiðarlegs vitnisburðar um dauðsföll barna fyrir breskum dómstólum. Hún endurheimti leyfið síðar sama ár en var meinað að bera vitni sem sérfræðingur fyrir breskum dómstólum í þrjú ár.

Yfirmats tveggja sérfræðinga hefur einnig verið aflað í máli Sigurðar eftir að endurupptaka þess var ákveðin. Báðir telja líklegast að barnið hafi látist í kjölfar höfuðáverka. Í greinargerð sinni gagnrýnir Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sigurðar, framkvæmd yfirmatsins og af greinargerðum málsaðila má ætla að áreiðanleiki matsgerðanna verði aðalumfjöllunarefnið fyrir Hæstarétti.

Saksóknari heldur því fram að úrskurður endurupptökunefndar sé sama marki brenndur og úrskurður um endurupptöku máls sem vísað var frá Hæstarétti af því að nefndin hafði ekki tekið fram að fyrri dómur Hæstaréttar skyldi halda gildi sínu þar til nýr dómur væri uppkveðinn. Af þessum sökum beri að vísa málinu frá.

Til vara krefst saksóknari staðfestingar héraðsdóms um sakfellingu. Sjálfur krefst Sigurður sýknu.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×