Fótbolti

Flýgur Fálkinn aftur til Madridar?

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Radamel Falcao vill komast frá Monaco í janúar
Radamel Falcao vill komast frá Monaco í janúar Vísir/EPA
Kólumbíski markahrókurinn Radamel Falcao vill ganga til liðs við Real Madrid þegar opnað verður fyrir félagaskipti í janúar.

Falcao er ekki í náðinni hjá Thierry Henry, sem tók nýverið við stjórnartaumunum hjá Monaco og vill þessi 32 ára gamli framherji ólmur komast til Real Madrid samkvæmt heimildum spænska blaðsins Marca.

Falcao sló í gegn í spænsku höfuðborginni á árunum 2011-2013 en þá lék hann fyrir Atletico Madrid þar sem hann gerði 70 mörk á þeim tveimur tímabilum sem hann lék í spænska boltanum.

Hann gekk svo í raðir Monaco en var svo lánaður þaðan um tíma í enska boltann þar sem hann lék fyrir Man Utd og Chelsea.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×