Lífið samstarf

Ítölsk trufflustemning á Apótek

Apótek kynnir
Bræðurnir Massimiliano og Matteo Cameli verða með ítalskt Pop Up á veitingastaðnum Apótekinu
Bræðurnir Massimiliano og Matteo Cameli verða með ítalskt Pop Up á veitingastaðnum Apótekinu Vilhelm
Camelibræður, þeir Massimiliano og Matteo, verða með ítalskt Pop Up á veitingastaðnum Apótekinu dagana 7. – 11. nóvember. Kokkarnir eiga og reka hótelið Al Veccio Convento, en veitingastaður þeirra sem ber sama nafn, er á hótelinu en það er staðsett í miðaldarþorpinu Portico di Romagna á milli Flórens og Ravenna.

Bræðurnir höfðu með sér nokkur kíló af svörtum trufflum og hafa sett saman sex rétta matseðil.Vilhelm
Bergdís Örlygsdóttir, einn af eigendum Apóteksins, segir matargesti eiga von á veislu fyrir bragðlaukana en bræðurinir eru miklir ástríðukokkar.

„Foreldrar þeirra opnuðu hótelið og veitingastaðinn fyrir um 48 árum svo þeir hafa lifað og hrærst í þessu frá því að þeir voru smápattar. Þeir eru spenntir fyrir Íslandsheimsókninni og hafa sett saman sex rétta matseðil, en á honum má meðal annars finna smokkfisksbleks-canneloni, djúpsteikt fyllt lambakonfekt og lasagna með svörtum trufflum og koma þeir einmitt með nokkur kíló af ítölskum trufflum með sér fyrir þann rétt,“.

Massimiliano og Matteo eru þekktir fyrir að blanda saman hefðbundnum og nútímalegum aðferðum í eldhúsinu og leggja mikið úr því að hráefnið sem þeir vinna með sé eins ferskt og völ er á.

„Þeir eru alvöru og ég verð að viðurkenna það að ég hlakka mikið til að borða hjá þeim,“ segir Bergdís.

Frekari upplýsingar og borðapantanir má finna inni á apotekrestaurant.is.

Massimiliano og Matteo eru þekktir fyrir að blanda saman hefðbundnum og nútímalegum aðferðum í eldhúsinu.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Apótek






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.