22 látnir eftir lestarslys í Taívan Sylvía Hall skrifar 21. október 2018 16:07
Að minnsta kosti 22 eru látnir og 170 slasaðir eftir að farþegalest fór út af sporinu í norðaustur Taívan í dag. Alls voru 366 farþegar í lestinni sem ferðaðist milli Taipei og Taitung í austurhluta landsins þegar allir átta vagnar lestarinnar fóru út af sporinu. Talið er að einn bandarískur ríkisborgari hafi dáið í slysinu. Lestin var um 70 kílómetrum frá Tapei þegar slysið varð. Yfirvöld rannsaka nú slysið en fréttamiðlar í landinu segja að tugir manna gætu enn setið fastir um borð í lestarvögnunum. Þá hafa þeir farþegar sem sitja fastir um borð reynt að brjóta sér leið út um rúður að sögn vitna.At least 22 people have died and 171 others were injured after an express train derailed in Taiwan. This aerial footage shows the scale of the disaster https://t.co/hdtOa2JIffpic.twitter.com/O9cJhWRYII — ITV News (@itvnews) 21 October 2018 Rekstraraðilar tjáðu sig um málið á blaðamannafundi í dag og sögðu lestina hafa verið í góðu ástandi fyrir slysið. Hún hafði verið í notkun í sex ár. Viðbragðsaðilar vinna nú að því að aðstoða hina slösuðu og samkvæmt upplýsingum frá varnarmálaráðuneyti landsins hafa 120 hermenn verið sendir á vettvang. Tildrög slyssins eru ókunn en vitni segjast hafa heyrt háan hvell og séð neista og reyk stíga upp frá lestinni.Vísir/AP
Taívan Mest lesið Sagður hafa nauðgað fatlaðri konu og látið son hennar horfa á Innlent Albert ákærður fyrir kynferðisbrot Innlent Tveir góðkunningjar flúðu lögregluna á hlaupahjóli Innlent Fimm grímuklæddir brutu upp útidyrahurð Innlent Fatasöfnunargámar Rauða krossins fjarlægðir á næstu dögum Innlent Enn slasast tugir í ókyrrð Erlent „Enn fólk að birtast sem hafði ekki hugmynd um þetta“ Innlent Lenti með höfuðið á malbikinu þegar maður tók fram úr bílalest Innlent „Hefðbundið eftirlit er ekki viðhaft að ástæðulausu“ Innlent Mögulega komnir úr landi en ekki ástæða til að lýsa eftir þeim Innlent Fleiri fréttir 87 talin af vegna troðnings Einn látinn og þúsundir án vatns og rafmagns Enn slasast tugir í ókyrrð Orbán hyggst óvænt heimsækja Úkraínu Í höndum Macron að koma í veg fyrir stórsigur Le Pen Hæstiréttur segir Trump njóta friðhelgi að hluta Einn helsti rithöfundur Albaníu er allur Strangrúaðir mótmæltu herskyldu Varað við fellibylnum Beryl sem er á leið yfir Karíbahafið Kínversk geimflaug hrapaði til jarðar Flestir á því að Biden valdi ekki starfinu Sögulegur dagur fyrir frönsku þjóðina að baki „Ástæða til að hafa áhyggjur“ Franska þjóðfylkingin leiðir samkvæmt útgönguspám Vöknuðu á floti og stigu út með drulluna upp að hnjám „Fólk er einfaldlega hrætt“ Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Sjá meira