Skoðun

Ekki hægt að bjarga öllum

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Um 500-550 einstaklingar sprauta vímuefnum í æð á Íslandi. Misnotkun ungs fólks á lyfseðilsskyldum lyfjum hefur aukist á undanförnum árum og vísbendingar eru um að dauðsföllum vegna ofneyslu lyfja hafi fjölgað nokkuð það sem af er ári. Fjöldi slíkra tilfella er rannsakaður um þessar mundir.

Þróunin er víða ógnvænleg. Ópíóðafaraldurinn dregur að meðaltali 115 einstaklinga til dauða á degi hverjum í Bandaríkjunum og Bandaríkjaforseti hefur lýst yfir neyðarástandi þar í landi vegna þessa. Yfir þrjú hundruð þúsund Bandaríkjamenn hafa dáið af of stórum skammti síðan um aldamótin samkvæmt opinberum tölum.

Grimmur veruleiki tveggja kvenna sem glíma við sprautufíkn blasti við áhorfendum í heimildaþáttum Jóhannesar Kr. Kristjánssonar, Lof mér að lifa, sem sýndir voru á RÚV í vikunni.

Átakanlegt var að fylgjast með konunum tveimur heyja harða lífsbaráttu og reyna allt til að verða ekki undir. Vont var að sjá hversu fá úrræði virtust standa þeim til boða þegar neyðin var sem mest.

SÁÁ hefur skilað öflugu starfi þegar kemur að meðferð við sprautufíkn. Það hefur fíknigeðdeild Landspítalans líka gert, þó plássin þar séu fá. Sjálfboðaliðaverkefni á borð við Frú Ragnheiði, þar sem áhersla er lögð á að minnka skaðann sem hlýst af alvarlegri fíkniefnaneyslu, með því að útvega fíklum hreinar nálar, aðhlynningu og spjall, eru ómetanleg. En viðfangsefnið er flókið, stórt og fer vaxandi. Fíklar eru heldur ekki einsleitur hópur þar sem eitt úrræði á við alla.

Skref í rétta átt er stigið í fjárlagafrumvarpi næsta árs, en um 50 milljónir króna eru eyrnamerktar til að koma á fót svokölluðum neyslurýmum í Reykjavík. Þar geta þeir sem nota vímuefni í æð átt skjól og fengið aðgang að hreinum nálum. Slíkt kemur í veg fyrir smit á sjúkdómum á borð við lifrarbólgu C og HIV-smit.

Kannski er næsta skref að útvega þeim allra lengst leiddu hreinlega efnin sjálf líka. Líkt og fram kom í fyrrnefndum heimildaþáttum þurfa fíklar að verða sér úti um efnin eftir ýmsum ógeðfelldum leiðum, vændi og afbrotum. Efnin eru dýr og í flestum tilfellum keypt á svörtum markaði í undirheimum þar sem fáir sjá til og fíklarnir vita ekkert hvað þeir eru að fá. Slík aðgerð gæti fækkað afbrotum og ofbeldi og útrýmt að mestu svörtum markaði með lyfseðilsskyld lyf. Með slíkum gerningi mætti bjarga lífum.

Við þurfum líka að horfast í augu við að það er ekki hægt að bjarga öllum. Sumir þeirra sem fastir eru í viðjum alvarlegrar fíknar ná vissulega að snúa við blaðinu – öðrum þurfum við einfaldlega að sýna umburðarlyndi, manngæsku og sætta okkur við að fíknin sigrar suma að lokum.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×