Dæmdur fyrir að hóta lögreglumönnum lífláti Atli Ísleifsson skrifar 17. október 2018 23:19 Í dómnum segir að við ákvörðun refsingar nú hafi verið litið til greiðrar játningar mannsins fyrir dómi. Vísir/Hanna andrésdóttir
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir brot gegn valdstjórninni með því að hafa í þrígang hótað lögreglumönnum, og í einu tilviki fjölskyldum þeirra, líkamsmeiðingum og lífláti. Maðurinn er sömuleiðis dæmdur fyrir að hafa ekið bíl undur áhrifum fíkniefna með þeim afleiðingum að hann hafnaði uppi á umferðareyju milli akreina og festist í snjó. Í dómi segir að fresta skuli fullnustu refsingarinnar og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi maðurinn almennt skilorð. Við ákvörðun refsingar var litið til greiðrar játningar mannsins fyrir dómi. „Ákærði var undir miklum áhrifum fíkniefna þegar hann framdi valdstjórnarbrotin. Var ástand hans slíkt að vista þurfti hann í fangageymslu þar til hann var viðræðuhæfur. Ástand hans leysir hann ekki undan sök þó ætla megi að ásetningur hans hafi verið þokukenndur. Til þyngingar horfir að um alvarlega háttsemi var að ræða en brot hans beindust gegn nokkrum lögreglumönnum sem voru við skyldustörf,“ segir ennfremur í dómnum.
Dómsmál Mest lesið Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Innlent Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Dregur úr vindi en áfram vetrarveður Veður Jólakindin Djásn á Stokkseyri Innlent Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Innlent Þak fauk nánast af hlöðu Innlent Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Innlent Fleiri fréttir Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Sjá meira