Fótbolti

Bale og Ramos ekki með gegn Arnóri og Herði

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ramos og Bale fagna marki á dögunum en þeir verða ekki með CSKA í Moskvu annað kvöld.
Ramos og Bale fagna marki á dögunum en þeir verða ekki með CSKA í Moskvu annað kvöld. vísir/getty
Það verður enginn Gareth Bale í leikmannahópi Real Madrid sem ferðast til Moskvu og mætir CSKA í Meistaradeildinni annað kvöld.

Bale fór meiddur af velli í hálfleik í markalausu jafntefli Real gegn nágrönnunum í Atletico á laugardaginn en leikurinn var afar leiðinlegur.

Bale er ekki sá eini sem ferðast ekki með til Moskvu en Sergio Ramos er einnig ekki í leikmannahópnum sem var tilkynntur í gær.

Ramos kláraði leikinn gegn Atletico en hann fékk högg rétt fyrir ofan augað. Hann kláraði þó leikinn en er ekki klár að spila annað kvöld.

Marcelo og Isco verða einnig heima vegna smávægilegra meiðsla og því fjórir verður Real án fjögurra lykilmanna er þeir heimsækja Arnór Sigurðsson, Hörð Björgvin Magnússon og félaga.

Ekki er þó búist við því að Hörður Björgvin spili gegn Real á morgun en hann hefur verið að glíma við meiðsli.

Real er með þrjú stig í riðlinum eftir 3-0 sigur á Roma í fyrsta leiknum á meðan CSKA gerði 2-2 jafntefli við Viktoria Plzen á útivelli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×