Fótbolti

Skuggi yfir merkum áfanga hjá Messi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi svekktur í leiknum sögulega í gær.
Messi svekktur í leiknum sögulega í gær. vísir/getty
Lionel Messi spilaði sinn 700. leik fyrir Barcelona í gær en þeim leik vill hann örugglega gleyma sem allra fyrst.

Þá spilaði Barca gegn botnliði Leganes en tapaði, 2-1. Ein óvæntustu úrslitin í spænska boltanum lengi.

Messi er þriðji leikmaðurinn í sögu Barcelona sem nær að spila 700 leiki fyrir félagið. Hinir eru Xavi og Andres Iniesta. Xavi er sá leikjahæsti í sögu spænska félagsins með 869 leiki. Það er nokkuð þangað til Messi nær því en hann gæti það enda aðeins 31 árs gamall.

Messi er þess utan orðinn leikjahæsti útlendingurinn í spænsku úrvalsdeildinni. Met sem hann tók af fyrrum félaga sínum, Dani Alves.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×