Fótbolti

Leikmenn Barcelona eru tapsárir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Leikmenn Leganes fagna í gær.
Leikmenn Leganes fagna í gær. vísir/getty
Ivan Cuellar, markvörður Leganes, var ekki hrifinn af framkomu leikmanna Barcelona í gær og skammaði þá fyrir að vera tapsára.

Barcelona tapaði þá 2-1 gegn botnliði spænsku úrvalsdeildarinnar. Mjög óvænt úrslit og leikmenn Barca ruku inn í klefa eftir leik.

„Við erum með auðmjúkt lið. Ég hef alltaf verið hrifinn af farsælum liðum sem kunna að tapa leikjum af auðmýkt. Óska andstæðingnum til hamingju,“ sagði Cueller.

„Það var aftur á móti ekki upp á teningnum hjá Barcelona. Ekki einn leikmaður félagsins óskaði okkur til hamingju og mér fannst það lélegt hjá þeim. Þeir verða að kunna að tapa líka.“

Leganes skoraði tvö mörk á 68 sekúndum til þess að tryggja sér sögulegan sigur.


Tengdar fréttir

Barcelona tapaði gegn Leganes

Barcelona er í vandræðum í spænsku úrvalsdeildinni en í kvöld tapaði liðið 2-1 fyrir Leganes á útivelli eftir að hafa komist í 1-0.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×