Fótbolti

Busquets framlengir til 2023

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Busquets við undirskriftina í dag.
Busquets við undirskriftina í dag. fc barcelona
Sergio Busquets mun væntanlega enda sinn feril hjá Barcelona eftir að hafa skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið.

Nýi samningurinn er til 2023. Er samningurinn rennur út verður Busquets alveg að detta í 36 ára. Það kostar 500 milljónir evra að kaupa hann undan samningi en sú tala var 200 milljónir í gamla samningnum.





Busquets hefur spilað 490 leiki fyrir Barcelona en hann kom þangað sem unglingur árið 2005. Hann er ekki mikill markaskorari en hefur laumað inn þrettán mörkum í þessum 490 leikjum.

Hann er aftur á móti algjör lykilmaður hjá félaginu og hefur unnið 28 titla með Börsungum. Þar af spænsku deildina sjö sinnum og Meistaradeildina þrisvar sinnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×