Lífið

Yrkir ádrepur af ýmsu tagi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Helgi yrkir bæði í baði og á hjóli, enda hefur hann ekkert annað að gera á meðan, að eigin sögn.
Helgi yrkir bæði í baði og á hjóli, enda hefur hann ekkert annað að gera á meðan, að eigin sögn. Vísir/Eyþór
Þetta eru ádrepur og ádeilur af ýmsum toga, þar á meðal stjórnmálalegum, en þó ekki einungis. Mér finnst dálítið gaman að eiga einhvers staðar í kvæðaformi vissa atburði líðandi stundar sem urðu að dægurþrasi eða dægurflugum og hurfu svo nánast út í vindinn.“ Þannig lýsir Helgi Ingólfsson, sögukennari í MR, efni nýrrar bókar sem var að koma út eftir hann. Kver um kerskni og heims­ósóma heitir hún og er í bundnu máli. Hann yrkir undir hefðbundnum bragarháttum. Sléttubönd, hvað þá annað. „Ég er samt ekkert pæla mikið í þeim fræðum. Ef maður lærir eitthvað af lausavísum og kvæðum þá kemur tilfinningin sjálfkrafa. Þetta er bara þjálfun,“ útskýrir hann.

Helgi kveðst hafa lært mikið af ljóðum á sínum tíma. „Þegar ég var í barnaskóla og gagnfræðaskóla þurfti ég að læra reiðinnar býsn utanbókar og hef ekki séð eftir því, það hefur nýst mér.“

Ekki kveðst hann fullyrða að hann geri vísu á hverjum degi. „En ef ég fer í bað þá hef ég ekkert annað að gera en yrkja, ég ferðast líka mikið á hjóli og það sama gildir þar.“

Ég hef orð á að eitt ljóðið í bókinni heiti líka Reiðhjólakviða. „Já, hún á ekki síður við um mig en þann sem ort er um þar (Hjálmar). Svo er auðvitað töluvert af þessu pólitískt heimsósómaraus þar sem ég reyni að skjóta á menn í öllum flokkum. Það helgast dálítið af því hverjir hafa setið við stjórnvölinn á síðustu árum. Ég held ég eigi ekki vin í neinum stjórnmálaflokki lengur.“

Þetta er fimmtánda bók Helga frá árinu 1994. Þess má geta að hann hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar er þau voru veitt í fyrsta sinn, það ár. Flestar bækur hans eru skáldsögur. Þetta er ljóðabók númer tvö. „Eins og þú sérð þá nær þessi bók frá 2014 til 2018. Það mætti halda að þar væri verið að minnast hundrað ára afmælis fyrri heimsstyrjaldarinnar sem stóð frá 1914 til 1918. Kannski kemur næsta bók af þessum toga 2039 til 2045, það yrði þá seinni heimsstyrjöldin.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.