Lífið

Vilja vekja fólk til umhugsunar

Gunnþórunn Jónsdóttir skrifar
Benjamín Sigurgeirsson, formaður SGÍ, og Birkir Steinn Erlingsson, formaður Vegan samtakanna. Á myndina vantar Valgerði
Árnadóttur, framkvæmdastjóra SGÍ, og Ragnar Frey sem koma einnig að sýningu myndarinnar.
Benjamín Sigurgeirsson, formaður SGÍ, og Birkir Steinn Erlingsson, formaður Vegan samtakanna. Á myndina vantar Valgerði Árnadóttur, framkvæmdastjóra SGÍ, og Ragnar Frey sem koma einnig að sýningu myndarinnar. fréttablaðið/ernir
„Helsta markmið okkar með því að sýna myndina er að vekja fólk til umhugsunar um hvaða afleiðingar venjur þess, og þá sérstaklega matarvenjur, hafa fyrir dýrin sem alla jafna eru hulin augum okkar og huga,“ segir Benjamín Sigurgeirsson, formaður SGÍ.

 

Dominion verður sýnd í Bíói Paradís í kvöld kl. 20. Aðgangur er ókeypis.

„Í myndinni er notast við dróna og leynilegar upptökur sem sýna það svart á hvítu hvað er í raun og veru að gerast á bæjum og í sláturhúsum.“

 

Reglulega eru heimildarmyndir á borð við Dominion sýndar í Bíói Paradís og alltaf í Veganúar sem í ár var haldinn hátíðlegur  í þriðja sinn. Má þar nefna Cowspiracy og Earthlings. Cowspiracy kemur inn á umhverfisáhrif í kjölfar dýralandbúnaðar en mikil metanlosun er af dýrunum og þau taka mikið svæði.

Margir sem breyta um lífsstíl

„Það er ákveðin ósjálfbærni að rækta mat ofan í dýrin og svo ofan í okkur í stað þess að rækta bara beint ofan í okkur.“

 

Earthlings, líkt og Dominion, fjallar um siðferðið í kringum kjötneyslu og segir Benjamín að heimildarmyndir á borð við þessar hafi augljóslega áhrif á fólk. Margir gerast vegan, eða grænkerar, og breyta lífsstíl sínum eftir áhorf.

„Það er rosalega mikil vakning í gangi í dag og þeir sem horfa á þessar myndir með opnum huga, verða vissulega fyrir áhrifum. Margir hafa jafnvel breytt um lífsstíl eftir að hafa horft á svona heimildarmyndir enda segja þær sannleikann blákalt,“ segir hann.

„Einnig viljum við sjá aukningu á neyslu grænmetis meðal Íslendinga og því fylgir að neysla dýra minnki. Á Íslandi í dag eru drepin um eða yfir sex milljón landdýr á hverju ári og væri óskandi að við værum til fyrirmyndar og dræpum færri dýr. Einnig eru dýr og dýraafurðir svona yfirleitt alla jafna fremur óholl fæða og sumir breyta um lífsstíl á þeim forsendum.“

Víða hræðilegar aðstæður

Benjamín segir aðstæður á Íslandi því miður ekki skárri en annars staðar í heiminum, líkt og víða hefur verið reynt að halda fram.

„Fyrir marga snýst þetta líka um að vernda dýrin og aðstæður sem dýrin eru í í dag. Þær eru vægast sagt hræðilegar. Sagt er að aðstæður séu betri á Íslandi en því miður á það ekki alltaf við rök að styðjast, sérstaklega ekki hjá svínum og kjúklingum. Sú framleiðsla er eins í öllum heiminum. Ég hvet alla til að mæta og horfa á myndina.“


Tengdar fréttir

Opnar eftir langan undirbúning

Vegan "dænerinn“ Veganæs opnar á morgun, Aðstandendur söfnuðu 2 milljónum króna til að láta drauminn rætast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.