Skoðun

Illgresi

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Óvissan er órjúfanlegur þáttur í öllu vísindastarfi. Vísindamaður sem segir sínar niðurstöður hinn heilaga sannleik og að þær staðfesti eitthvað, sama hvað, með óyggjandi hætti er lítið betri en sölumenn snákaolíu. Með öðrum orðum; það er enginn sannleikur í vísindunum. Aðeins kenningar eða ályktanir, dregnar af traustum rannsóknum og tilraunum sem byggja á rökstuddri tilgátu um rannsakanlegt viðfangsefni.

Kviðdómur í San Francisco fékk á dögunum það ömurlega verkefni að komast að þessum umdeilda sannleika þegar hann tók afstöðu til þess hvort efnið glýfosfat, sem er virka efnið í gróður- og illgresiseyðinum Roundup sem efnaframleiðslurisinn Monsanto framleiðir, hafi valdið eitilfrumukrabbameini hjá garðyrkjumanni í borginni. Niðurstaða kviðdómsins var á þá leið að glýfosafat hafi sannarlega valdið krabbameininu.

Hinn dauðvona Dewayne Johnson fær 30 milljarða króna í skaðabætur. Frá því að niðurstaða kviðdómsins var kunngerð hafa margir fjölmiðlar gengið svo langt að fullyrða að tengsl glýfosfats og krabbameins séu nú loks staðfest. Vísindin eru ekki undirorpin almenningsáliti. Vísindin eiga að vera hafin yfir opinbera umræðu, enda nálgumst við hana oft á forsendum okkar frumstæðustu hvata, eins og ótta, ástar og haturs. Það að fela kviðdómi að skera úr um vísindaleg álitamál er í besta falli vafasamt og í versta falli háskalegt fyrir það hvernig við hugsum um og hagnýtum vísindi.

Það er ekkert sem bendir til þess að glýfosfat valdi krabbameini. Langtíma rannsókn á áhrifum illgresiseyða á 90 þúsund bandaríska bændur hefur í aldarfjórðung ekki sýnt fram á nein skaðleg áhrif. Sameiginleg skýrsla Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar komst að þeirri niðurstöðu að engar vísbendingar væru um aukna áhættu á krabbameini sökum glýfosfats hjá bændum og neytendum. Efnastofnun Evrópu komst síðan að því á síðasta ári að ekki væri hægt að flokka efnið sem krabbameinsvaldandi.

Monsanto mun áfrýja niðurstöðunni, en um leið blasir við holskefla af málshöfðunum gegn fyrirtækinu. Niðurstaðan í San Francisco snertir jafnframt önnur fyrirtæki, enda á Monsanto ekki einkarétt á notkun efnisins. Krafan um að efnið verði bannað með öllu er jafnframt orðin háværari. Fari svo þurfum við að horfast í augu við minni uppskeru og hærra matarverð. Bændur munu annaðhvort þurfa að nota illgresiseyða sem eru mun skaðlegri heilsu manna og umhverfinu eða taka upp eldri aðferðir við að fjarlæga gróður og illgresi. Það er rökvilla að fjalla um vísindin sem kennivald. Vísindamenn eru ekki óskeikulir. Sagan er yfirfull af vísindamönnum sem skjátlaðist. Við höfum verið svo lánsöm að saga vísindanna, þó skrykkjótt sé, er vörðuð af framförum sem haldast í hendur við hina vísindalegu aðferð, en ekki niðurstöðu kviðdóms eða almannaálits.


Tengdar fréttir

Umhverfisstofnun fylgist náið með eiturefnamálinu

Fyrirtæki í Bandaríkjunum hefur verið dæmt til að greiða manni skaðabætur vegna eiturefnis sem það framleiðir. Efnið er að finna í arfaeyðinum Roundup sem fæst hér á landi.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×