Sólin heilsar upp á landsmenn Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. júní 2018 06:25 Sól! Veðurstofan
Sólþyrstir Íslendingar geta tekið gleði sína á ný ef marka má spákort Veðurstofunnar. Gert er ráð fyrir því að það verði léttskýjað á nánast öllu landinu í dag og því ekki við öðru að búast en að sólargeislar muni leika um landsmenn. Vindur verður um 3 til 10 m/s og hitinn jafnframt hinn bærilegasti, á bilinu 8 til 16 stig og hlýjast syðra. Fólk ætti að njóta sólarinnar eins og það getur því að hún stoppar stutt við. Það mun bæta í vind í nótt og gerir Veðurstofan ráð fyrir að byrja muni aftur að rigna á morgun, sérstaklega á Vesturlandi. Þó verður lengst af nokkuð þurrt austantil á landinu. Þar mun jafnframt verða hlýjast en talið er að hitinn gæti farið upp í allt að 19 stig á Austurlandi á morgun. Veðrið mun svo haldast nokkuð svipað út vikuna. Súld með köflum, nokkuð hægur vindur og hlýjast á Norðaustur- og Austurlandi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ fimmtudag:Gengur í sunnan 8-15 með rigningu V-til á landinu. Hægari og léttskýjað um landið A-vert, en þykknar upp síðdegis. Hiti 9 til 18 stig, hlýjast NA-lands.Á föstudag:Suðvestan 5-13 m/s. Bjart veður NA- og A-lands, annars skýjað og súld eða rigning framan af degi. Hiti breytist lítið.Á laugardag:Suðlæg átt og fer að rigna, fyrst SV-til, en þurrt NA-lands fram á kvöld. Hiti 8 til 12 stig, en 12 til 17 um landið NA-vert.Á sunnudag:Suðvestanátt og súld með köflum, en þurrt á N- og A-landi. Víða rigning um kvöldið. Hiti breytist lítið.Á mánudag:Vestlæg átt með rigningu um mest allt land. Hiti 6 til 11 stig.Á þriðjudag:Útlit fyrir vaxandi sunnannátt með rigningu þegar líður á daginn, fyrst SV-til. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Erlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Fleiri fréttir Bjóða upp á sértíma í líkamsrækt fyrir trans og kynsegin Ólafur Ragnar um Davíð Oddsson: „Hugsar og hegðar sér eins og fasisti“ Flogið yfir Goðabungu eftir stóra skjálftann Fundi frestað til morgundags: „Það kostar að vera með fólk í vinnu“ Ræðismaður segir mikinn baráttuanda í Úkraínumönnum Gríðarlega umfangsmikið matskerfi á leið inn í skólakerfið „Töluverður og alvarlegur“ misbrestur við vinnslu mála Heimila íshellaferðir á ný Bylting í skólakerfinu og flugfreyja sem eyddi húsnæðissparnaðinum í flugnám JL húsið verður búsetuúrræði fyrir flóttafólk Eyvindur settur landsréttardómari Nýtt björgunarskip komið til landsins Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Færri ferðamenn þýðir lægri dagpeningar ríkisstarfsmanna Ökumaður bakkaði á barn á Ísafirði Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Vita ekki hvernig Rússar skilgreina gildi sín Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Fundur sem ræður úrslitum hafinn Neituðu að hafa smyglað tuttugu milljónum sígaretta Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Mjúkt vald Íslands út um allan heim Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Tekist á um menntamál og brúarsmíði Auður mjög tímabundið settur forstjóri Tekinn með efni eftir að vinur sló sig í höfuðið með skiptilykli Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Kennarasambandið hlynnt nýjum matsferli Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Hvernig þingmenn yrðu Arnar Þór, Jón Gnarr og Þórður Snær? Sjá meira