Ekki fara á ranga staði í Rússlandi Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. júní 2018 23:30 Lars Lagerbäck á hlaupabrautinni með kollegum sínum í landsliðinu fyrir leik. Vísir/Andri Marinó
Lars Lagerbäck, þjálfari norska karlalandsliðsins í knattspyrnu, telur að sanngjörn úrslit í leik liðanna í kvöld hefðu verið jafntefli. Þeir norsku unnu 3-2 sigur með tveimur mörkum á lokakaflanum þar sem vörn Íslands leit illa út. Lars sagði leikinn hafa verið svipaðan og hann bjóst við. Síðasta kennslustund Lars, segir í umfjöllun Vísis. „Ég held að þetta hafi verið 50/50 leikur, jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit,“ sagði Lars á fundi með blaðamönnum eftir leikinn. Sá sænski var léttur, brosti og hafði á orði að blaðamenn mættu spyrja hann eins lengi og þeir vildu. Þetta væri að öllum líkindum í síðasta skipti sem hann sæti í þessu sæti á Laugardalsvelli. Sagði hann fjölmiðlafulltrúa norska liðsins að hann myndi bara labba heim á Grand hótel, þar sem norska liðið gistir. Albert Guðmundsson spilaði síðustu fimm mínúturnar í kvöld.Vísir/Andri Marinó Einstakur árangur frá 2013 „Ég minnti Heimi á að Ísland hefði ekki tapað hérna síðan árið 2013 gegn Slóveníu,“ sagði Lars. Það er frábær árangur. Engin spurning. Okkar menn voru taplausir í sextán leikjum í Laugardalnum, 13 sigrar, þrjú jafntefli og 22 mörk í plús (31-9. Sturlaður árangur. Sigurganga Lars í dalnum heldur áfram þótt geggjaðri siglingu okkar manna hafi lokið í kvöld. Lars tók upp hanskann fyrir íslenska liðið. Leikmenn væru ekki heilir, mörkin hefðu verið klaufaleg og svo gæti það hentað íslenska liðinu illa að spila gegn liði sem svipar til Íslands. En að fá á sig þrjú mörk gegn Norðmönnum, með Argentínu handan við hornið? Það lítur ekki vel út. „Já, en Heimir skipti mönnum út. Hann saknaði líka leikmanna og þarf að taka það með í reikninginn,“ sagði Lars. Hann minnti á hve ólíkir andstæðingar Noregur og Argentína væri. Norðmenn væru skipulagðir, með líkamlega sterka leikmenn. „Þú átt alltaf möguleika í fótbolta,“ sagði Lars og minnti á styrkleika Íslands, alla jafna, að verjast vel. Þú átt alltaf möguleika í fótbolta er mantra sem Lars hefur hamrað á í gegnum árin, orð að sönnu. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði gullfallegt mark sem stefndi í að yrði sigurmark Íslands, en svo fór aldeilis ekki.Vísir/Andri Marinó Slakt gengi í æfingaleikjum „Þegar ég sat á íslenska bekknum naut ég þess að horfa á Ísland spila. Þegar maður situr á hinum bekknum fattar maður hvað það er erfitt að spila á móti Íslandi, vörninni og skyndisóknunum,“ sagði Lars og var ekkert að skafa af aðdáun sinni á íslenska verkefninu. Varðandi það hvort hann sæi einhverjar breytingar á liðinu frá því sem var undir hans stjórn sagði Lars svo ekki vera. Helst innkoma Harðar Björgvins í stöðu vinstri bakvarðar sem gefi Íslandi aðra kosti en áður. Hann búi yfir spyrnugetu og auki styrk Íslands í föstum leikatriðum. Okkar mönnum gengur ekki vel í æfingaleikjum. Vertíð Heimis og Lars með liðið á sínum tíma byrjaði á tapleikjum í æfingaleikjum. Fyrsti keppnisleikurinn var 2-0 sigur á Norðmönnum. Æfingaleikir fyrir EM 2016 gengu ekki vel. Lokakeppnin gekk aldeilis vel. Nú sigra Norðmenn í Dalnum. Hvað veldur? Lars var beðinn um að tjá sig um það. Helsti punktur Lars hvað það varðaði sneri að því að hjá litlum liðum eins og Noregi og Íslandi þá þurfi liðið frábæra frammistöðu í öllum leikjum. Alveg eins og hjá Íslandi hafi ekki gengið vel í æfingaleikjum hjá Noregi. Leikmenn séu þó að læra hlutverk sín og gengið að skána, meðal annars með sigrinum í kvöld. Minntur á tapið gegn Noregi í æfingaleik fyrir EM fyrir tveimur árum, hvort að þetta gefi ekki bara fögur fyrirheit? „Ég ætla að vona það.“ Hannes Þór Halldórsson og Aron Einar Gunnarsson voru á varamannabekknum í dag vegna meiðsla sinna.Vísir/Andri Marinó Kom Tólfunni á óvart Lars kíkti með Heimi Hallgrímssyni, þjálfara Íslands, á Ölver fyrir leikinn í dag þar sem byrjunarlið Íslands var kynnt. „Heimir bað mig um að koma. Hann byrjaði á þessari hefð þegar við vorum ráðnir, til að fá stemmningu í Tólfuna aftur,“ sagði Lars. Það kom honum á óvart að hann hafði ekki látið Tólfuna vita af komu sinni. „Þeir áttu ekki von á mér,“ sagði Lars sem þakkaði kærlega fyrir Tólfuhring sem hann fékk gefins. Hann hefði spjallað við stuðningsmenn og samskiptin verið einlæg og vinaleg. Hann gaf Tólfunni norska landsliðstreyju með áletrun um gott gengi Tólfunnar í Rússlandi. Ég held að þeir hafi kunnað að meta það. Lars minntist á frábæra afgreiðslu Gylfa í öðru marki Íslands, vinalegt spjall við Birki Bjarna um lífið og tilveruna eftir leik og vinaleg samskipti sín við stuðningsmenn og fjölmiðlamenn á tíma sínum hjá Íslandi. „Þakka ykkur kærlega fyrir. Þetta hefur verið frábært,“ sagði Lars og stóð upp úr sætinu. „Ekki fara á ranga staði í Rússlandi,“ bætti Lars við þegar hann gekk út og fékk salinn til að skella upp úr.
HM 2018 í Rússlandi Tengdar fréttir Frederik: Getur verið vitur eftir á Frederik Schram, markvörður Íslands gegn Noregi í kvöld, sagðist sjá eftir því að hafa reynt að sóla Joshua King í öðru marki Noregs í kvöld. 2. júní 2018 22:28 Heimir ekki ósáttur við Frederik | Hannes gat ekki spilað Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi eftir leikinn að Hannes Þór Halldórsson hefði átt að standa á milli stanganna í leiknum gegn Noregi en hefði ekki verið alveg tilbúinn. 2. júní 2018 23:04 Twitter eftir leikinn: „Eins og neikvæður gaur í Costco grúppu“ Ísland tapaði 3-2 fyrir Noregi í næst síðasta æfingarleik sínum fyrir HM. Ísland komst í 2-1 um miðjan síðari hálfleikinn en glutraði niður forskotinu. 2. júní 2018 22:03 Umfjöllun: Ísland - Noregur 2-3 | Síðasta kennslustundin frá Lars Ísland komst í vænlega stöðu gegn Noregi í kvöld en klúðraði málunum á síðustu mínútunum og tapaði fyrir Lars Lagerbäck og lærisveinum hans í norska landsliðinu. 2. júní 2018 22:15 Mest lesið „Mjög undarlegt að þessi höll standist kröfur“ Handbolti Áhyggjufullir nágrannar hringdu í lögregluna Fótbolti Segir að Maradona hafi búið í hryllingshúsi síðustu ævidagana Fótbolti Ósáttur fótboltapabbi skaut þjálfarann Sport Skiptir úr sálfræðinni í Duolingo Handbolti Aron Einar og Lúkas í fyrsta hópi Arnars Fótbolti Velta því fyrir sér hvort fimmtán ára HK-ingur hafi skorað mark ársins Handbolti Svona var fyrsti blaðamannafundur Arnars Fótbolti Albert spenntur fyrir komandi tímum undir stjórn Arnars Fótbolti Orri nýr fyrirliði Íslands Fótbolti Fleiri fréttir Ómögulegt fyrir Arnar að velja Gylfa Orri nýr fyrirliði Íslands Aron Einar og Lúkas í fyrsta hópi Arnars Svona var fyrsti blaðamannafundur Arnars Segir að Raphinha sé líklegri til að vinna Gullboltann en Salah Áhyggjufullir nágrannar hringdu í lögregluna Hákon fer á kostum en saknar bróður síns Albert spenntur fyrir komandi tímum undir stjórn Arnars Fyrirliði City í áfalli eftir að stjórinn var rekinn Sjáðu mörkin og vítakeppnina hjá Liverpool og PSG Segir að Maradona hafi búið í hryllingshúsi síðustu ævidagana „Skiptir engu máli hvort við áttum skilið að vinna“ „Við tókum út alla lukkuna í síðustu viku“ Donnarumma varði tvö víti í vítakeppninni og PSG fór áfram Bayern og Inter ekki í miklum vandræðum að tryggja sig áfram Stefán Teitur lagði upp mark sem dugði næstum því til sigurs Þór/KA konur áfram í undanúrslit eftir sigur í Árbænum Raphinha áfram í stuði þegar Barcelona fór örugglega áfram Skilur ekkert í gagnrýninni sem Mbappé fær Vill vinna titla með Arsenal svo hann gleymist ekki Tveggja leikja bann fyrir glórulausa tæklingu Fyrirliði Vestra veðjaði á leiki í Bestu deildinni Segir að framherjaleysið sé ekki aðal vandamál Arsenal „Liðið sem vinnur í kvöld fer alla leið“ 55 ára Rúnar smurði hann í skeytin með bæði hægri og vinstri Ratcliffe viðurkennir mistök með Ten Hag og Ashworth Segir að Liverpool þurfi að spila besta leik tímabilsins til slá PSG út Segir að United hefði orðið gjaldþrota um jólin ef ekki hefði verið gripið inn í Svona mun nýr heimavöllur Man. Utd líta út Ætla að vera fyrst til að græða pening á kvennamóti Sjá meira
Frederik: Getur verið vitur eftir á Frederik Schram, markvörður Íslands gegn Noregi í kvöld, sagðist sjá eftir því að hafa reynt að sóla Joshua King í öðru marki Noregs í kvöld. 2. júní 2018 22:28
Heimir ekki ósáttur við Frederik | Hannes gat ekki spilað Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari sagði á blaðamannafundi eftir leikinn að Hannes Þór Halldórsson hefði átt að standa á milli stanganna í leiknum gegn Noregi en hefði ekki verið alveg tilbúinn. 2. júní 2018 23:04
Twitter eftir leikinn: „Eins og neikvæður gaur í Costco grúppu“ Ísland tapaði 3-2 fyrir Noregi í næst síðasta æfingarleik sínum fyrir HM. Ísland komst í 2-1 um miðjan síðari hálfleikinn en glutraði niður forskotinu. 2. júní 2018 22:03
Umfjöllun: Ísland - Noregur 2-3 | Síðasta kennslustundin frá Lars Ísland komst í vænlega stöðu gegn Noregi í kvöld en klúðraði málunum á síðustu mínútunum og tapaði fyrir Lars Lagerbäck og lærisveinum hans í norska landsliðinu. 2. júní 2018 22:15