Lífið

Þú getur eignast brúðkaupsföt Beckham-hjónanna

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Óneitanlega glæsileg.
Óneitanlega glæsileg. Vísir/Getty
Hjónin Victoria og David Beckham hafa ákveðið að gefa fötin sem þau klæddust í konunglega brúðkaupinu til góðgerðamála. Áhugasamir geta boðið í fötin og rennur ágóðinn af sölunni óskiptur til eftirlifenda árásarinnar í Manchester á síðasta ári. Alls létust 22 í sjálfsmorðssprengjuárásinni sem framkvæmd var á tónleikum Ariana Grande í borginni.

Milljónir manna fylgdust með því þegar Harry Bretaprins gekk að eiga Meghan Markle í lok maí. Fjölmörg þekkt andlit fengu boðskort í athöfnina, þar með talin Beckham-hjónin. Þau eru af mörgum talin einhver stílhreinustu hjón veraldar og þóttu þau einkar flott í tauinu í athöfninni.

Því má ætla að töluverður peningur muni fást fyrir brúðkaupsfötin, sem rennur sem fyrr segir allur til góðgerða.

Hér að neðan má sjá fötin sem þau klæddust í brúðkaupinu, í færslu Victoriu um málið. Nánari upplýsingar má nálgast með því að smella hér.

Instagram

Tengdar fréttir

Auða sætið var ekki handa Díönu

Autt sæti við hlið Vilhjálms Bretaprins, bróður brúðgumans Harrys, vakti mikla athygli í brúðkaupi hins síðarnefnda og bandarísku leikkonunnar Meghan Markle í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.