Fjórir Rússar féllu í átökum við ISIS-liða Samúel Karl Ólason skrifar 27. maí 2018 20:57 Vladimir Putin ræðir við hermenn í Sýrlandi. Vísir/GETTY
Varnarmálaráðuneyti Rússlands sagði í dag að fjórir rússneskir hermenn hefðu fallið í átökum við vígamenn Íslamska ríkisins í Sýrlandi. Mennirnir munu hafa verið hernaðarráðgjafar og studdu þeir aðgerðir stjórnarhers Sýrlands í Deir ez-Zor í austurhluta Sýrlands. Ekki liggur fyrir hvenær mennirnir féllu en ISIS-liðar sögðust á föstudaginn hafa fellt fimmtán sýrlenska og rússneska hermenn sem ferðuðust í bílalest nærri bænum al-Mayadin. Þá segjast ISIS-liðar hafa eytt fimm flutningsbílum, brynvörðum farartækjum og skemmt skotvörpu (e. Rocket launcher). Ekki liggur fyrir hvort að ISIS-liðar hafi verið að vísa til sama atviks og Varnarmálaráðuneyti Rússlands.Í tilkynningu ráðuneytisins segir að umrædd árás hafi átt sér stað að nóttu til og að tveir hermenn hafi fallið á staðnum og að fimm hafi særst. Tveir hinna særðu dóu á sjúkrahúsi. Þeir tveir sem féllu á staðnum eru sagðir hafa stýrt skotvörpu. Átökin munu hafa staðið yfir í nærri því klukkustund.Guardian hefur eftir Syrian Observatory for Human Rights, eftirlitssamtökum sem reka umfangsmikið net heimildarmanna í Sýrlandi, að á undanförnum fimm dögum hafi minnst 76 Assad-liðar fallið í átökum í Deir ez-Zor og minnst 25 ISIS-liðar.
Mið-Austurlönd Sýrland Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Segir Akranes verða svefnbæ Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira