Skoðun

Þegar brestur og brotnar - verður úr að bæta

Edith Alvarsdóttir skrifar
Borgin okkar - Reykjavík býður fram kraftmikla reynslu, áræðni og þor í komandi borgarstjórnarkosningum, vegna þess sem Reykvíkingar finna, þegar á þeim er brotið:

- Í heilbrigðiskerfi þar sem fólk bíður úrlausnar, er geymt, gleymt eða er vannært.

Aldraðir eru þeir sem hafa byggt samfélagið upp með blóði, svita og tárum. Þeirra verðlaun eiga að vera virðing, umönnun og þakklæti. Er reyndin sú?

Við heyrum um að aldraðir séu vannærðir, afskiptir, gleymdir á biðlistum, jafnvel fluttir hreppaflutningum milli landshluta eins og niðursetningar. Þegar kemur að málefnum aldraðra er yfirleitt rætt um hversu dýrt kerfið sé. Þessir einstaklingar hafa greitt skatta og skyldur allt sitt líf.

Mikill skortur er á hjúkrunarrýmum fyrir aldraða, biðlistarnir lengjast og biðtíminn einnig. Sérhver skattgreiðandi greiðir 11 þúsund á ári í framkvæmdasjóð aldraðra, þetta eru rúmir tveir milljarðar á ári. Tilgangur sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um land allt. Féð úr honum skal varið til byggingar stofnana fyrir aldraða. Hvers vegna er þá ástandið í öldrunarmálum eins og það er? Hvert fara þessir fjármunir sem eru eyrnamerktir í þágu aldraðra? Hefur Reykjavíkurborg ekkert samráð?

Eitt af því sem lítið hefur verið hugað að og má vart ræða, er hversu margir starfsmenn á öldurnar- eða hjúkrunarheimilum eru af erlendu bergi brotnir. Þetta er að öllu jöfnu réttlætt með þeim orðum að það fáist ekki íslenskt starfsfólk, því það vilji ekki vinna þessi störf eða launin séu svo lág. Ekki hefur þó mikið verið rætt um að gera kröfur eða hækka launin. Hvað þá hvort það sé eldri borgurum samboðið að inn á heimilum þeirra sé starfsfólk sem það skilur ekki eða öfugt.

Hvers vegna er ekki gerð krafa um að þeir sem starfi við umönnun tali íslensku? Hvers vegna er ekki öllum umönnunaraðilum boðið upp á íslenskunám í vinnutímanum?

Höfundur skipar 2. sætið á framboðslista Borgin okkar Reykjavík fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. 




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×