Fótbolti

Sjáðu markaveisluna frá Róm

Anton Ingi Leifsson skrifar
Liverpool er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 4-2 tap gegn Roma í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Fyrri hálfleikurinn var mikið fjör og eftir hann var Liverpool 2-1 yfir. Öll mörkin komu á sextán mínútna kafla, frá 9. mínútu til þeirrar 25.

Síðari hálfleikurinn var ekki rólegri. Mörkunum algjörlega rigndi og 4-2 sigur Roma staðreynd en Roma vantaði bara eitt mark til þess að komast í framlengingu.

Öll mörkin úr leiknum má sjá í sjónvarpsglugganum efst í fréttinni og ef einhverjir vilja rifja upp mörkin úr fyrri leiknum sem voru afar mikilvæg má sjá þau hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×