Fótbolti

Sara Björk þarf að skora í úrslitaleiknum til að deila silfurskónum með Katrínu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Sara Björk Gunnarsdóttir er búin að vera með markaskóna reimaða fast á sig í Meistaradeildinni.
Sara Björk Gunnarsdóttir er búin að vera með markaskóna reimaða fast á sig í Meistaradeildinni. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, tekur fyrst íslenskra kvenna þátt í úrslitaleik Meistaradeildarinnar þegar að lið hennar Wolfsburg mætir Lyon í Kænugarði 24. maí.

Sara hefur spilað frábærlega í Meistaradeildinni fyrir þýska stórveldið og skorað sex mörk en hún er fyrir úrslitaleikinn í þriðja sæti á markalista Meistaradeildarinnar.

Hún deilir þriðja sætinu með þremur öðrum leikmönnum en er sú eina af þeim fjórum sem hefur skorað öll mörkin sín í aðalkeppninni sjálfri. Hinar þrjár skoruðu annað hvort hluta eða öll mörkin í forkeppninni.

Mörk úr forkeppninni telja þó til markadrottningartitils Meistaradeildarinnar sem Norðamaðurinn Ada Hegerberg, leikmaður Lyon, á vísan þetta tímabilið en hún er búin að skora fjórtán mörk, sjö meira en næstu konur, og getur enn bætt við á móti Söru og stöllum hennar.

Pernille Harder, leikmaður Wolfsburg er í öðru sætinu með sjö mörk líkt og Katrín Ásbjörnsdóttir, leikmaður Stjörnunnar sem gæti endað sem næst markahæsti leikmaður Meistaradeildar kvenna þetta tímabilið ásamt Harder og vonandi Söru.

Katrín skoraði fimm mörk fyrir Stjörnuna í forkeppni Meistaradeildarinnar og bætti svo við tveimur í 32 liða úrslitunum á móti rússneska liðinu Rossiyanka. Íslensku landsliðskonurnar á skotskónum í deild þeirra bestu.

Úrslitaleikur Wolfsburg og Lyon fer fram á Valeriy Lobanovskyi-vellinum í Kænugarði 24. maí og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×