Menning

Tryggvi Ólafsson hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar

Þórhildur Erla Pálsdóttir skrifar
Tryggvi Ólafsson
Tryggvi Ólafsson Vísir/GVA
Tryggvi Ólafsson hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2018. Stjórn Jónshúss gerði tillögu um verðlaunahafa til forsætisnefndar Alþingis. Í rökstuðningi sagði að „Tryggvi er sá íslenski listmálari sem lengst hefur búið og starfað í Danmörku. Þá hefur Tryggvi haldið flestar listsýningar af íslenskum málurum, alls um 35 í Danmörku auk fjölda sýninga.“

Tryggvi hlýtur verðlaunin fyrir ævistarf sitt í þágu myndlistar og framlag sitt til eflingar menningarsamskipta Íslands og Danmerkur. Gígja dóttir Tryggva Ólafssonar tók við verðlaunum fyrir hönd föður síns og flutti kveðju og þakkir frá honum. Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, veitti verðlaunin.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis og Gígja Tryggvadóttir.Mynd/Skrifstofa Alþingis





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.