Oliver á leið til Breiðabliks Tómas Þór Þórðarson skrifar 3. apríl 2018 09:00 Oliver Sigurjónsson var fyrirliði U21 árs landsliðsins í síðustu undankeppni. vísir
Oliver Sigurjónsson, leikmaður Bodo/Glimt í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta, er á leið á láni til uppeldisfélagsins Breiðabliks í Pepsi-deildinni, samkvæmt heimildum Vísis í Noregi. Oliver, sem var lykilmaður í Blikaliðinu 2015 og 2016, gekk í raðir norska félagsins um mitt síðasta sumar en spilaði aðeins 26 mínútur á síðustu leiktíð ytra, meðal annars vegna meiðsla. Hann hefur verið í stífri endurhæfingu í allan vetur og var ónotaður varamaður í fyrsta leik liðsins í norsku deildinni en hefur ekki verið í leikmannahópnum í síðustu tveimur umferðum. Samkvæmt heimildum Vísis vill Bodö að Oliver fái mínútur og spiltíma til að koma sér aftur af stað en hann hefur lítið spilað síðasta árið vegna meiðsla. Hann náði aðeins fjórum leikjum í Pepsi-deildinni á síðustu leiktíð vegna meiðsla. Koma Olivers styrkir Blikaliðið sem hefur ekki farið neinum hamförum á leikmannamarkaðnum en eini miðjumaðurinn sem kom í vetur er Guðmundur Böðvar Guðjónsson frá ÍA. Ungir og efnilegir strákar hafa fengið mikið að spila hjá Ágústi Gylfasyni á undirbúningstímabilinu en Breiðabliksliðið hefur litið ágætlega út í vetur eftir komu hans.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 26-24 | Svekkjandi tap í síðasta leik fyrir HM Handbolti Frábært mark Trents, fyrsta mark Chiesa og nýtt Liverpool met hjá sextán ára strák Enski boltinn Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Þórir hefur ekki áhuga Handbolti Freyr sagði já við Brann Fótbolti Frækinn sigur Plymouth en þægilegt hjá Chelsea Enski boltinn „Ætla að halda áfram að pumpa væntingarnar“ Handbolti Upprúllun hjá City gegn litla nágrannaliðinu Enski boltinn Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Stórsigur hjá KR-ingum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Daninn og Svíinn á skotskónum í sigri Vals Stórsigur hjá KR-ingum Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Alex Þór aftur í Stjörnuna Yfirgefur æskufélagið og semur við Þrótt „Hann er mjög eftirminnilegur og mér þykir vænt um hann“ „Himinlifandi“ eftir að hafa landað fyrirliða Fylkis KA fær lykilmann úr Eyjum Íslandsmeistarinn Andri Rafn áfram í röðum Breiðabliks Brazell ráðinn til Vals Gísli Gottskálk eftirsóttur í Póllandi Berglind Björg í raðir Breiðabliks Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum „Ég trúi því að frábært geti alltaf orðið ennþá betra“ Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Logi Ólafs kveður eftir áratugastarf í MH Yfirlögfræðingur KSÍ verður framkvæmdastjóri Víkings KA-fólk fær sérútgáfu af bókinni Íslensk knattspyrna í ár Mikil sorg hjá Fram-fjölskyldunni Nauðsynlegt og löngu tímabært Stefán Þór Þórðarson í þjálfarastarf hjá Skagamönnum Fyrirliði Selfoss til liðs við Þróttara Vinna að lagningu gervigrass hafin í Vesturbæ „Hef mínar pælingar sem mér finnst gaman að taka áfram“ Blikar kveðja Damir og óska honum góðs gengis í Brúnei Mist Funa komin heim Víkingar seldu Bjarka Björn til Eyja Mætti syni sínum Sjá meira