Fótbolti

Af hverju er Ronaldo ekki með nein tattú?

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo þarf ekkert að skreyta þennan líkama.
Ronaldo þarf ekkert að skreyta þennan líkama. vísir/getty
Á tímum þar sem stór hluti knattspyrnumanna skreytir líkama sinn með húðflúrum er ekki eitt einasta á einni stærstu stjörnu íþróttarinnar, Cristiano Ronaldo.

Ronaldo hefur í raun aldrei talað um af hverju hann sé ekki með í tattúmenningunni en Mirror segir að ástæðan sé líklega sú að Ronaldo sé blóðgjafi.

Ronaldo hefur reglulega talað um hversu mikilvægt það sé að gefa blóð og hefur hvatt aðra til þess að gera það. Sjálfur gaf hann blóð að minnsta kosti tvisvar á síðasta ári.





Þeir sem fá sér tattú geta ekki gefið blóð í fjóra mánuði í kjölfarið. Það er ekki staða sem Ronaldo vill víst vera í.

Ronaldo er ekki bara blóðgjafi heldur hefur hann einnig gefið beinmerg. Hann ákvað að gera það er sonur vinar hans hjá landsliðinu veiktist. Þá gaf hann beinmerg og er til í að gera það aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×