Fótbolti

Zidane: Mitt mark var betra

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ronaldo og Zidane kunna báðir að skora mörk.
Ronaldo og Zidane kunna báðir að skora mörk. vísir/getty
Það ætti ekki að hafa farið framhjá neinum fótboltaáhugamanni að Cristiano Ronaldo skoraði stórbrotið mark í sigri Real Madrid á Juventus í Meistaradeild Evrópu í kvöld.

Ronaldo kom Real yfir snemma leiks en það er annað mark hans sem vakti sanngjarna athygli, stórbrotin bakfallsspyrna úr miðjum markteignum.

Sjá einnig: Sjáðu glæsimark Ronaldo og magnaða lýsingu Hödda Magg

Real vann leikinn 0-3 og er í frábærri stöðu fyrir seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Knattspyrnustjóri Real, fyrrum stórstjarnan Zinedine Zidane, var þó ekki eins hrifinn og margir aðrir og sagðist hafa skorað betra mark á sínum tíma.

Aðspurður í viðtali eftir leikinn hvort markið hafi verið fallegra, mark Ronaldo eða mark hans í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Bayer Leverkusen árið 2002 sagði Zidane: „Markið mitt. Klárlega.“

Hann var þó ánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum.

„Það er ekki auðvelt að skora þrjú mörk gegn Juventus á þeirra heimavelli. Við spiluðum frábærlega en Juve spilaði einnig vel og settu pressu á okkur. Þeir fengu færi til að skora mörk en við vorum beinskeyttari.“

„Cristiano Ronaldo er öðruvísi en allir aðrir og hann vill alltaf gera eitthvað stórkostlegt í Meistaradeildinni. Markið hans var frábært en hann misnotaði tvö mun auðveldari færi,“ sagði Zinedine Zidane.

Mark Zidane frá 2002 má sjá í myndbandinu hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×