Fótbolti

Sjáðu sjálfsmark Navas og öll hin mörkin úr leikjum kvöldsins

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Bayern fagna marki á meðan niðurlútur Navas horfir á
Leikmenn Bayern fagna marki á meðan niðurlútur Navas horfir á visir/getty
Cristiano Ronaldo stal senunni í kvöld þegar hann skorað framúrskarandi mark í leik Juventus og Real Madrid í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

Hann skoraði með bakfallsspyrnu eftir klukkutíma leik á Ítalíu eftir að hafa komið Real yfir strax á 3. mínútu leiksins. Portúgalinn kórónaði svo frábæran leik sinn með því að leggja upp síðasta mark leiksins fyrir Marcelo.

Í hinum leik kvöldsins lagði Bayern Münich Sevilla að velli á Spáni. Heimamenn komust yfir í fyrri hálfleik en mistök Jesus Navas í markinu kostuðu Sevilla forystuna og Thiago Alcantara skoraði sigurmarkið sem einnig má skrifa á mistök Navas í markinu.

Öll atvikin úr báðum leikjum kvöldsins má sjá hér að neðan.

Juventus - Real Madrid 0-3
Sevilla - Bayern Münich 1-2



Fleiri fréttir

Sjá meira


×