Fótbolti

Sjáðu mörkin sem fóru með City og sjálfsmörk Rómverja

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Mohamed Salah.
Mohamed Salah. Vísir/Getty
Liverpool vann 3-0 sigur á Manchester City í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Mörkin þrjú komu öll á fyrsta hálftíma leiksins.

Mohamed Salah skoraði á 12. mínútu og Alex Oxlade-Chamberlain bætti við öðru marki með glæsilegu langskoti stuttu seinna. Sadio Mane skoraði svo þriðja markið eftir undirbúning Salah eftir hálftíma leik.

Salah var mögulega rangstæður í fyrsta markinu en það fékk að standa og dómararnir dæmdu mark af Gabriel Jesus í seinni hálfleik vegna rangstæðu Leroy Sane. Sane virtist þó ekki vera rangstæður í endursýningu.

Í hinum leik kvöldsins skoraði Luis Suarez fyrsta Meistaradeildarmark sitt á tímabilinu í 4-1 sigri Barcelona á Roma þar sem Ítalirnir gerðu tvö sjálfsmörk.

Öll atvik úr báðum leikjum má sjá hér að neðan.

Liverpool - Manchester City 3-0
Barcelona - Roma 4-1



Fleiri fréttir

Sjá meira


×