Fótbolti

76 prósent líkur á að undanúrslitin séu ráðin

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Það eru 97 prósent líkur á að Real fari áfram í undanúrslit
Það eru 97 prósent líkur á að Real fari áfram í undanúrslit Vísir/Getty
Fyrri leikjum 8-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu lauk í gærkvöld og má segja að það sé orðið nokkuð ljóst hvaða lið fara í undanúrslitin.

Barcelona, Liverpool og Real Madrid unnu öll þriggja marka sigra í fyrri leikjum sínum í 8-liða úrslitunum og Barcelona skoraði tvö mörk í útisigri.

Tölfræðifyrirtækið Gracenote hefur tekið saman líkurnar á því að sigurlið vikunnar fari áfram eftir seinni leikina í næstu viku og byggir útreikningana sögunni.

88 prósent líkur eru á því að Barcelona fari áfram og hin liðin eru öll með yfir 90 prósent líkur á að fara í undanúrslitin. Samanlagðar líkur eru því yfir 76 prósentum á að liðin sem leiða í einvígjunum fara áfram .

Úrslit vikunnar í Meistaradeild Evrópu:

Barcelona - Roma 4-1

Liverpool - Manchester City 3-0

Sevilla - Bayern München 1-2

Juventus - Real Madrid 0-3








Fleiri fréttir

Sjá meira


×