Fótbolti

,,Real Madrid vill selja Bale”

Dagur Lárusson skrifar
Gareth Bale.
Gareth Bale. vísir/getty
Real Madrid vill selja Gareth Bale en þetta fullyrðir Guillem Balague, sérfræðingur Sky Sports um spænsku deildina.

 

Gareth Bale kom til Real Madrid árið 2013 frá Tottenham Hotspur og hefur síðan þá unnið þrjá Meistaradeildartitla með liðinu. Hann hefur hinsvegar verið óheppinn með meiðsli og nú virðist þolinmæði félagsins vera á þrotum.

 

,,Ég er viss um það að Real Madrid vilji selja Gareth Bale.” 

 

,,Það er hinsvegar ekki það sem Bale vill, hann vill vera áfram. Auðvitað mun eitthvað lið þurfa að kaupa Bale en ég held ekki að það verði Tottenham,” sagði Balague en Bale hefur verið orðaður við endurkomu til Tottenham.

 

,,Það er í rauninni ekki raunhæft að hann fari þangað aftur. Það væri ekki rétta skrefið fyrir hann og það myndi kosta Tottenham of mikið.”

 

,,Auðvitað myndi Tottenham vilja fá hann til baka en þeir hafa öðruvísi leikmenn í huga. Það eru önnur lið sem eiga meiri pening og hafa meiri löngun til þess að kaupa hann.”

 

Bale hefur verið orðaður við lið eins og Manchester United og Bayern Munich og því verður fróðlegt að fylgjast með gangi mála í sumar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×