Ræða hvar eigi að rétta yfir síðustu „Bítlunum“ Samúel Karl Ólason skrifar 20. febrúar 2018 11:56 El Shafee Elsheikh og Alexanda Kotey. Ekki er vitað hvenær myndirnar voru teknar en þær voru teknar eftir að þeir voru handsamaðir í síðasta mánuði. Vísir/AFP
Bretland og Bandaríkin eiga í viðræðum um hvort og hvar rétta eigi yfir síðustu „Bítlunum“ sem handsamaðir voru í Sýrlandi í síðasta mánuði. Sýrlenskir Kúrdar handsömuðu þá Alexanda Kotey og El Shafee Elsheikh, sem eru frá Bretlandi og tilheyrðu alræmdum hópi erlendra vígamanna Íslamska ríkisins sem pyntuðu og myrtu vestræna gísla samtakanna. Mohammed Emwazi, eða Jihadi John, leiðtogi hinna svokölluðu Bítla var feldur í loftárás árið 2015 og Aine Davis var handtekinn í Tyrklandi. Kotey og Elsheikh eru því síðustu meðlimir hópsins sem gengu undir nafninu „Bítlarnir“ vegna einkennandi hreims þeirra þar sem þeir eru allir frá London.Samkvæmt frétt BBC hafa mennirnir verið sviptir ríkisborgararétti sínum en embættismenn Bandaríkjanna og Bretlands eiga þó í viðræðum um hvað gera eigi við þá.Amber Rudd, innanríkisráðherra Bretlands, sagði stjórnvöld Bretlands staðráðin í að réttað yrði yfir þeim. Þó er ekki vitað hvar. Meðal þess sem kemur til greina er að rétta yfir þeim í Alþjóðlega sakamáladómstólnum og jafnvel að senda þá til Guantanamo fangabúðanna á Kúbu. Vitað er að Bítlarnir myrtu minnst sjö gísla ISIS. Þrjá frá Bandaríkjunum, tvo frá Bretlandi og tvo frá Japan. Þeir eru einnig sagðir hafa pyntað fangana.
Mið-Austurlönd Tengdar fréttir Síðustu „Bítlarnir“ í haldi Kúrda Yfirvöld Bandaríkjanna segja fjóra erlenda vígamenn ISIS, sem gengu undir nafninu „Bítlarnir“, hafa afhöfðað minnst 27 gísla ISIS. 8. febrúar 2018 19:55 Mest lesið Ölvaður ökumaður keyrði á umferðareyju og reyndi að flýja Innlent Egill syrgir brottvísun vina sinna Innlent „Hreint og klárt vistmorð sem hér á sér stað“ Innlent Útilokar ekki kosningu en Jón vill kjósa áður en það verður of seint Innlent Segir Akranes verða svefnbæ Innlent N1-mót og Dyrfjallahlaup í skítaveðri Innlent Allt að tuttugu stiga hiti í dag Veður Reikna með að hefja formlegar sameiningarviðræður í haust Innlent Lögregla vopnaðist og skotvopn haldlagt Innlent Þyrla kölluð út vegna bifhjólaslyss á Vestfjörðum Innlent Fleiri fréttir Frakkar ganga til sögulegra kosninga Sextán drepnir í loftárás á skóla Skortur á Ozempic hefur leitt til ólöglegrar starfsemi Nefna Mílanóflugvöll í höfuðið á Berlusconi Beryl lék Mexíkó grátt Umbótasinni bar sigur úr býtum í Íran Heitir því að klára baráttuna og sigra Trump Reeves skipuð fjármálaráðherra fyrst breskra kvenna Sunak segir af sér og hættir sem leiðtogi Tímamót í samningaviðræðum en enn langt í land Stórsigur Verkamannaflokksins á kostnað Íhaldsflokksins Kæmi mjög á óvart sigri annar flokkur en Verkamannaflokkurinn Verkamannaflokkurinn með stórsigur samkvæmt útgönguspám Baktalaði Biden í golfi: „Gamla niðurbrotna skítahrúga“ Kristrún og félagar sækja atkvæði fyrir Verkamannaflokkinn Enn má pissa í sjóinn á Costa del Sol Uppsagnir á Skaganum og Bretar kjósa nýja valdhafa Hryðjuverkamaðurinn í Ósló fær þyngsta dóm sögunnar Bretar ganga að kjörborðinu Neil Gaiman sakaður um kynferðisofbeldi Trump eykur forskotið og Biden ekki á förum Þvertaka fyrir að Biden sé efins um framboð Ákærður fyrir árásina á Mette Frederiksen Ákærðir fyrir að hafa fellt tré með banvænum afleiðingum Maður á þrítugsaldri stunginn til bana í Kaupmannahöfn Gert að eyða gjafasæði vegna mistaka við merkingu Beryl við það að skella á Jamaíku Sá fyrsti sem kallar eftir því að Biden stígi til hliðar Friðhelgin stórauki vald forsetans Ákvörðun um refsingu Trump frestað Sjá meira
Síðustu „Bítlarnir“ í haldi Kúrda Yfirvöld Bandaríkjanna segja fjóra erlenda vígamenn ISIS, sem gengu undir nafninu „Bítlarnir“, hafa afhöfðað minnst 27 gísla ISIS. 8. febrúar 2018 19:55