Skoðun

Opnum þennan markað

Hanna Katrín Friðriksson skrifar
Samgöngumál eru mörgum hugleikin þessa dagana og af mörgu að taka. Einn angi þessa umfangsmikla málaflokks sem lítið hefur farið fyrir snýr að leigubílaakstri. Samkvæmt núgildandi reglugerð um leigubifreiðar teljast þær til almenningssamgangna og eins og með margt annað í því kerfi er tímabært að gera bragarbót á. Undirrituð er fyrsti flutningsmaður þingsályktunartillögu um frelsi á leigubílamarkaði þar sem lagt er til að samgönguráðherra verði falið að afnema hámarksfjölda atvinnuleyfa til leigubílaaksturs, fækka kvöðum fyrir veitingu þeirra og opna markaðinn fyrir aukinni samkeppni.

Til að leigubílar geti sinnt hlutverki sínu í almenningssamgöngukerfinu þarf þjónustan að vera aðgengileg og á viðráðanlegu verði. Heilbrigð samkeppni er lykillinn í því að ná þessum markmiðum. Að þeim uppfylltum gætu fleiri lagt einkabílnum varanlega, kjósi þeir að gera svo, og nýtt strætisvagna og leigubíla í bland til að sinna erindagjörðum sínum með minni kostnaði, minna álagi á vegakerfið, minna svifryki og aukinni umhverfisvernd.

Meðal kvaða sem núgildandi kerfi felur í sér má nefna að leyfishafar hafi leigubílaakstur að meginatvinnu. Kerfið hindrar þar með námsfólk og einstaklinga með skerta starfsgetu í að starfa sem leigubílstjórar. Einnig má nefna kröfur um að leyfishafar séu skráðir eigendur leigubílsins sem þeir aka og að öryrkjar þurfi að framvísa meðmælum frá Öryrkjabandalaginu og tryggingayfirlækni. Er ekki námskeið og próf til að hljóta atvinnuleyfi nægilegur mælikvarði á hæfni einstaklinga til að keyra leigubíla?

Loks er þarft að endurskoða núgildandi kröfu um að löggiltir gjaldmælar undir eftirliti Samgöngustofu séu í öllum leigubílum. Þetta ákvæði hamlar m.a. tæknilegri framþróun á borð við greiðslu í gegnum snjallsímaforrit en slíkt greiðsluform er lykilþáttur í því að opna íslenskan markað fyrir þjónustu fyrirtækja á borð við Uber og Lyft sem margir þekkja að utan. Sú þjónusta byggir á grundvelli samningsfrelsis og kostum deilihagkerfisins. Það væri vægast sagt sérkennilegt að ætla í fullri alvöru að ræða uppbyggingu almenningssamgöngukerfisins án þess að horfa til þessara þátta.



Höfundur er þingflokksformaður Viðreisnar




Skoðun

Sjá meira


×