Perla Björk nýr framkvæmdastjóri 3Z Atli Ísleifsson skrifar 2. febrúar 2018 15:30 Perla Björk Egilsdóttir og Karl Ægir Karlsson. 3z
Perla Björk Egilsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri 3Z. Hún hefur leitt viðskiptaþróun félagsins og tekur við stöðunni af Karli Ægi Karlssyni sem tekur við nýju hlutverki og leiðir rannsóknar- og þróunarstarf félagsins. Frá þessu segir í tilkynningu frá 3Z. Perla Björk er lífefnafræðingur og hefur um árabil gegnt stjórnunarstörfum innan lyfja- og heilbrigðisiðnaðarins. „Ég tel að 3Z hafi alla burði til að verða leiðandi rannsóknar- og þjónustufyrirtæki á ört vaxandi lyfjaleitarmarkaði. Framundan er aukin markaðssókn,” er haft eftir Perlu Björk í tilkynningunni. Karl Ægir segir að sem framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun hafi hann sinnt stjórnunarhlutverki ásamt því að leiða rannsóknar- og þróunarstarf félagsins. „Með þessum breytingum get ég einbeitt mér að rannsóknar- og þróunarhlutverkinu, sem er mitt sérsvið, meðan Perla tekur yfir þau verkefni sem fylgja daglegri stjórnun félagsins og stefnumörkun.” Í tilkynningunni kemur fram að 3Z starfi á lyfjamarkaði og hafi þróað skilvirka aðferð við lyfjaleit. „Aðferðin gefur mynd af virkni lyfjasameinda í heilli lifandi lífveru og er um leið mun hraðvirkari og hagkvæmari en hefðbundnar aðferðir. Aðferðir 3Z byggjast á því að nota sebrafiska sem dýralíkan en fyrirtækið hefur hannað erfðabreytt líkön af mennskum taugasjúkdómum í fiskinum, þar á meðal Parkinson´s, flogaveiki, ADHD, sársauka og svefnleysi,“ segir í tilkynningunni.
Ráðningar Vistaskipti Mest lesið Ómar fær fyrir ferðina Neytendur Rannveig hættir í Seðlabankanum Viðskipti innlent Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Viðskipti innlent Betra en ekki að viðurkenna mistökin Atvinnulíf Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Viðskipti innlent Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Viðskipti innlent Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Viðskipti innlent Ýmir Örn fer frá N1 Viðskipti innlent Senda tækið til útlanda til skoðunar og vilja endurgreiða Steinunni Neytendur Þrjú þúsund krónur fyrir ferð í parísarhjólið Neytendur Fleiri fréttir Arion banki greiði Seðlabankanum 585 milljónir Rannveig hættir í Seðlabankanum Íslensk hugbúnaðarlausn greinir kolefnisspor innkaupa fyrirtækja Flýta ekki vaxtaákvörðun þrátt fyrir áköll Flestar íbúðir seljist undir eða á auglýstu verði Ýmir Örn fer frá N1 Verðbólga nú 5,8 prósent Icelandair kaupir Airbus flughermi Í maí voru 5800 atvinnulausir Snúa vörn í sókn og kynna eldfjallaleið fyrir ferðamenn Andri Þór Viðskiptafræðingur ársins 2024 Hafa ekki nokkrar áhyggjur af fækkun ferða Seldu til rannsóknarrisa: „Maður þarf að vera draumóramaður“ Gugga í Gatsby kveður: „Margar konur búnar að skæla hérna inni“ Wok on-veldið falt Unnur vaktar fjármálin í Danmörku Húrra Reykjavík opnar á Keflavíkurflugvelli Bein útsending: Kynna yfirtökutilboðið Gefa út kynjað skuldabréf Sóttu rúman milljarð í fjármögnun Hundrað manna hjúkrunarheimili gæti sparað tugi milljóna með smáforriti Taka tvö í Vesturbugt Spilafíklar geti lokað á fjárhættuspil hjá Indó Jón nýr forstjóri Veritas María Björk tekur við af Orra Vinna eins og hakkarar en eftir skýrum reglum Fleiri kaupi ódýrar íbúðir án þess að taka lán Íslensk ferðaþjónusta verði að vaxa í sátt við samfélagið Wok On gjaldþrota Steinunn Kristín ný í stjórn Varðar Sjá meira