Vinna Fjölnismenn sinn fyrsta titil í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. febrúar 2018 19:00 Hans Viktor Guðmundsson. Vísir/Eyþór
Fjölnir og Fylkir mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmóts meistaraflokks karla í fótbolta í Egilshöllinni í kvöld en leikurinn hefst klukkan 20.00 Fjölnismenn geta þarna unnið sinn fyrsta Reykjavíkurmeistaratitil og í raun sinn fyrsta titil í meistaraflokki karla. Fjölnismenn hafa nefnilega heldur ekki orðið Íslandsmeistarar, bikarmeistarar eða deildabikarmeistarar en Garfarvogspiltar unnu reyndar b-deildina sumarið 2013. Fjölnir vann 5-0 sigur á Leiknismönnum í undanúrslitaleiknum og eru því komnir annað árið í röð í úrslitaleikinn. Í fyrra tapaði Fjölnisliðið 1-0 á sjálfsmarki í úrslitaleik á móti Val. Ísak Óli Helgason (2 mörk), Ægir Jarl Jónasson og Hans Viktor Guðmundsson skoruðu mörkin í undanúrslitaleiknum en fimmta markið var sjálfsmark. Hans Viktor er á tuttugasta og öðru aldursári en hinir tveir halda upp á tvítugsafmælið sitt í ár. Það er líka langt síðan að Fylkismenn unnu þennan titil en Árbæingar hafa ekki orðið Reykjavíkurmeistarar í ellefu ár eða síðan Fylkir vann Víkinga 3-1 í úrslitaleiknum 2007. Andrés Már Jóhannesson skoraði í úrslitsleiknum fyrir ellefu árum en hann er einnig í Fylkisliðinu í dag. Hinn 22 ára gamli Orri Sveinn Stefánsson tryggði Fylki 1-0 sigur á KR í undanúrslitaleiknum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Vignir Vatnar lagði Magnus Carlsen Sport Íþróttafólkið þorir ekki að borða kjöt Sport Hörður undir feldinn Körfubolti Félögin vilja ekki knattspyrnukonur með börn Sport „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Íslenski boltinn Sektaður um sex milljónir fyrir að tala um getnaðarlim sinn Körfubolti Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár Enski boltinn Velta því fyrir sér hvort níska Liverpool komi í veg fyrir að Nunez spili Enski boltinn „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Fótbolti Fresta fleiri fótboltaleikjum vegna fráfalls Frans páfa Fótbolti Fleiri fréttir „Vilhjálmur Birgisson vill meina að hann hafi uppgötvað mig sem þjálfara“ Tveir úrskurðaðir í bann fyrir sextán liða úrslitin Uppgjörið: Þróttur - Breiðablik 2-2 | Samantha bjargaði stigi „Fótbolti er þannig að allir þurfa að taka ábyrgð“ Uppgjörið: Stjarnan - Víkingur 2-6 | Áslaug Dóra með þrennu í stórsigri Víkinga „Skoraði síðast þrennu í sjöunda flokki“ Stutt stopp í Vesturbæ: Valor aftur til Eyja Uppgjörið: Fram - FH 0-2 | Nýliðarnir enn án sigurs Leikmenn ÍBV hjálpuðu til við að færa sætin á milli valla í Eyjum Bæði Akranesliðin fengu heimaleik í bikarnum „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR ÍA og Vestri mætast inni Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira