Fótbolti

Loforðið sem gerir alla í Barcelona brjálaða

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Neymar.
Neymar. Vísir/Getty
Brasilíumaðurinn Neymar dreymir um að spila aftur á Spáni en þó ekki fyrir sitt gamla félag Barcelona.

Nýjustu fréttir úr herbúðum Paris Saint Germain herma að Neymar hafi fengið sérstakt loforð frá forseta franska liðsins. Þetta er loforð sem gerir alla í Barcelona brjálaða.

Samkvæmt frétt Goal-síðunnar þá má Neymar fara til Real Madrid ef að hann hjálpar Paris Saint Germain að vinna Meistaradeildina í vor.

Neymar hefur sagt nánum vinum sínum á síðustu vikum að hann dreymi um að spila fyrir Real Madrid

Parísarliðið borgaði Barcelona 222 milljónir evra fyrir Neymar í haust og hann hefur skorað 24 mörk og gefið 16 stoðsendingar í fyrstu 23 leikjum sínum með PSG.

Vísir/Getty
Samkvæmt frétt Goal þá sjá menn á Santiago Bernabeu Neymar fyrir sér til að taka við súperstjörnuhlutverki Cristiano Ronaldo í liðinu.

Neymar var á reynslu hjá Real Madrid í 20 daga þegar hann var aðeins þrettán ára gamall og var nálægt því að fara til Real eftir viðræður við Florentino Perez árð 2013.

„Með því að vera í Madrid þá yrði auðveldara fyrir mig að vinna Gullboltann,“ lét Neymar hafa eftir sér í lok síðasta árs.

Samningur Neymar og PSG er til ársins 2022 en það er ekki hægt að kaupa hann upp eins og var með samning hans hjá Barcelona.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×