Samkomulag um nýjan stjórnarsáttmála í höfn í Noregi Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2018 10:01 Knut Arild Hareide, formaður Kristilega þjóðarflokksins, Trine Skei Grande , formaður Venstre, Siv Jensen, formaður Framfaraflokksins og Erna Solberg forsætisráðherra og formaður Hægriflokksins daginn eftir kosningar í september. Vísir/AFP
Formenn Hægriflokksins, Framfaraflokksins og Venstre hafa náð samkomulagi um nýjan stjórnarsáttmála í Noregi.Frá þessu greinir NRK. Þar segir að formenn Framfaraflokksins og Venstre hafi boðað til flokksráðsfunda á sunnudag til að kynna og greiða atkvæði um stjórnarsáttmálann. Enn hefur ekki fengist staðfest að Hægriflokkurinn geri slíkt hið sama. Formenn flokkanna – Erna Solberg forsætisráðherra hjá Hægriflokknum, Siv Jensen hjá Framfaraflokknum og Trine Skei Grande hjá Venstre – munu á næstu dögum leggja lokahönd á sáttmálann sem yrði svo kynntur flokksmönnum viðkomandi flokka á sunnudag. NRK segir frá því að á síðustu dögum hafi farið fram erfiðar viðræður um stefnu mögulegrar ríkisstjórnar í málefnum innflytjenda, olíuframleiðslu og loftslagsmálum. Stjórnarmyndunarviðræðurnar hófust á Jeløya þann 2. janúar síðastliðinn, en kosningarnar fóru fram þann 11. september síðastliðinn.Drógu sig úr úr samstarfinu Hægriflokkurinn og Framfaraflokkurinn mynduðu saman minnihlutastjórn á síðasta kjörtímabili þar sem Venstre og Kristilegi þjóðarflokkurinn vörðu stjórnina vantrausti. Í nýrri ríkisstjórn mun Venstre vera með ráðherra í ríkisstjórninni. Kristilegi þjóðarflokkurinn lýsti því yfir fljótlega eftir kosningar að þeir drægju sig út úr stjórnarsamstarfinu. Verði stjórnin að veruleika verður um minnihlutastjórn að ræða.
Norðurlönd Þingkosningar í Noregi Mest lesið Lík Jay Slater fundið Erlent Hefur aldrei verið í vinnu en hefur verið iðinn við afbrot Innlent Íslendingur fannst látinn á Spáni Innlent Kourani dæmdur í átta ára fangelsi Innlent Betlari til leiðinda í miðbænum Innlent Lárus skuli fyrst taka til í „eigin veðmálastarfsemi“ Innlent Veggmynd Guðsteins fer ekki fet Innlent J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Erlent Sniglarnir taka ekki þátt í mótmælum bifhjólafólks í kvöld Innlent Þriggja bíla árekstur undir Hamraborg Innlent Fleiri fréttir J.D. Vance verður varaforsetaefni Trump Leyniskjalamáli Trump vísað frá dómi Fulltrúar Hamas og Fatah funda í Kína í næstu viku Hringurinn þrengist í leitinni að varaforsetaefni Lík Jay Slater fundið Kallas segir af sér vegna nýja starfsins Raðmorðingi játar að hafa myrt allt að 42 konur Katrínu tekið fagnandi á Wimbledon „Ég ætti að vera dauður“ Tæki 100 flutningabifreiðar 15 ár að flytja húsarústirnar á brott Ávarpaði þjóðina og hvatti menn til að „kæla“ orðræðuna Ástand hinna særðu sagt stöðugt Íslenskir ráðamenn verið skammaðir fyrir að senda Trump batakveðju Hinn látni slökkviliðsmaður sem fórnaði sér fyrir fjölskylduna Fundu sprengjur í bíl og á heimili árásarmannsins „Við viljum heim þar sem ástin sigrar“ Ótrúleg mynd virðist sýna kúlu fljúga fram hjá Trump Árásin komi til með að auka stuðning við Trump „Bandaríkjamenn krefjast svara um morðtilræðið“ Segir Guð hafa bjargað sér Bjarni segir atburði gærkvöldsins átakanlega Svona var vettvangur árásarinnar Musk styður Trump Grunaður árásarmaður hét Thomas Matthew Crooks Leiddur blóðugur af kosningafundi eftir skotárás Fannst á lífi eftir tvo sólarhringa neðanjarðar Umfangsmikil árás á Gasa talin hafa banað minnst 71 Maður handtekinn vegna líkamsleifa í ferðatösku Felldi tár þegar málinu var vísað frá „Biden á langa sögu af mismælum“ Sjá meira