Menning

Þjóðleikhúsið skiptir yfir í rafrænar leikskrár

Daníel Freyr Birkisson skrifar
Leikhúsgestir munu hafa aðgang að gestaneti auk þess sem spjaldtölvur eru aðgengilegar í gestarými.
Leikhúsgestir munu hafa aðgang að gestaneti auk þess sem spjaldtölvur eru aðgengilegar í gestarými. vísir/gva
Þjóðleikhúsið mun frá og með frumsýningu á Hafinu á annan dag jóla, færa allar leikskrár sínar í rafrænt form og hafa þær aðgengilegar öllum á vef leikhússins. Leikhúsgestir hafa einnig aðgang að gestaneti auk þess sem spjaldtölvur eru aðgengilegar í gestarými. Þetta kemur fram í tilkynningu frá leikhúsinu.

Þar segir að ákvörðunin sé tekin í ljósi nýrrar tækni og möguleika sem geri kleift að leggja áherslu á framleiðslu á rafrænu ítarefni sem meðal annars inniheldur viðtöl við leikara og listræna stjórnendur ásamt fleiru sem eykur ánægju leikhúsgesta og þekkingu á þeim verkum sem í boði eru hverju sinni.



„Leikhúsgestir eru nánast allir með snjalltæki og vilja nálgast upplýsingar í gegnum þau. Það er ekki nema sjálfsagt að leikhúsið sinni þeirri kröfu og sé í takt við tímann,“ segir Ari Matthíasson þjóðleikhússtjóri.

„Við finnum fyrir mikilli ánægju með þessa breytingu sem við höfum verið að þróa í haust. Það virðist ekki vera mikill söknuður eftir þykkum prentuðum leikskrám og við skynjum meiri áhuga á efninu sem boðið er upp á í staðinn. Enda býður það upp á nýja og spennandi möguleika.“

Leikhúsið hefur á þessu leikári boðið gestum, án endurgjalds, upp á einfalda prentaða sýningaskrá þar sem finna má grunnupplýsingar um sýningar og aðstandendur þeirra. Gert er ráð fyrir að sú prentun muni einnig leggjast af þegar fram líða stundir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.