Fótbolti

Xavi: Messi er miklu betri en Ronaldo

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Xavi og Lionel Messi unnu marga titla saman hjá Barcelona.
Xavi og Lionel Messi unnu marga titla saman hjá Barcelona. vísir/getty
Xavi, fyrrverandi leikmaður Barcelona, segir að Lionel Messi sé mun betri leikmaður en Cristiano Ronaldo.

Eftir að Ronaldo tók við sínum fimmta Gullbolta fyrr í mánuðinum sagði Portúgalinn að hann væri besti leikmaður fótboltasögunnar.

Xavi er ekki sammála þessari skoðun Ronaldos og segir að Messi sé sá besti fyrr og síðar.

„Messi gerir meira miðað við Ronaldo. Messi er sá besti,“ sagði Xavi.

„Ef Ronaldo telur sig vera besta leikmann í heimi er það fínt. En fyrir okkur við sem höfum séð hann [Messi] æfa er þetta engin spurning. Messi er sá besti í  sögunni.“

Messi og Ronaldo verða væntanlega í eldlínunni þegar erkifjendurnir Barcelona og Real Madrid mætast á Santiago Bernabéu í hádeginu á morgun.


Tengdar fréttir

Ronaldo tæpur fyrir El Clásico

Það ríkir enn óvissa um hvort Cristiano Ronaldo verði með í stórleiknum gegn Barcelona á Þorláksmessu. Hann gat ekki æft með liði Real Madrid í dag.

Spænskur jólapakki á Þorláksmessunni

Erkifjendurnir Real Madrid og Barcelona mætast í 237. sinn á Þorláksmessu. Pressan er öll á Madrídingum sem þurfa að vinna til að halda í við Börsunga og eiga möguleika á að verja Spánarmeistaratitilinn sem þeir unnu í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×