Fótbolti

Berizzio rekinn frá Sevilla

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Berizzio á hliðarlínunni
Berizzio á hliðarlínunni vísir/getty
Spænska félagið Sevilla rak í kvöld knattspyrnustjóra sinn, viku eftir að hann snéri aftur til starfa eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna krabbameins.

Eduardo Berizzio tók við liði Sevilla í maí. Hann gekkst undir aðgerð á blöðruhálskirtli í nóvember og sneri aftur til vinnu í síðustu viku og stýrði Sevilla í markalausu jafntefli gegn Levante síðasta föstudag, 15. desember.

Sevilla hefur aðeins náð í eitt stig úr síðustu þremur deildarleikjum sínum og situr í fimtma sæti La Liga deildarinnar, 13 stigum á eftir toppliði Barcelona.

Sevilla mætir Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í febrúar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×