Lífið

Pelsafár hraustra karlmanna geisar á landinu 

Benedikt Bóas skrifar
Strákarnir á Pablo Discobar komnir í múnderinguna. Gunnsteinn stendur lengst til vinstri.
Strákarnir á Pablo Discobar komnir í múnderinguna. Gunnsteinn stendur lengst til vinstri. Vísir/Stefán
Það eru bara flottir karlmenn og skemmtilegar týpur sem ganga í pelsum,“ segir Gunnsteinn Helgi, einn eigenda Pablo Discobar og Burro en staðurinn í samstarfi við Gyllta köttinn er að koma pelsum í tísku hjá íslenskum karlmönnum.

„Þetta byrjaði á því að barþjónar Pablo Discobar keyptu sér pels og fóru að ganga í þeim. Þá byrjaði boltinn að rúlla og hann er núna kominn á fulla ferð. Vinir þeirra keyptu sér pels og viðskiptavinir keyptu sér pels og síðan þá hefur geisað sannkallað pelsafár á götum borgarinnar,“ segir Gunnsteinn.

Sem bílstjóri pelsavagnsins heldur Pablo Discobar pelsamiðvikudaga í desember og síðasti, allavega í desember, er einmitt í kvöld. Smirnoff Pelsa kokteila æði kallast það og eru kokteilar gerðir úr Smirnoff á 1.500 krónur allt kvöldið en aðeins 1.000 krónur fyrir fólk sem mætir í pels fyrir klukkan 21.00.



Dísa í Gyllta kettinum segir karlmenn vilja pelsana síða og svolítið flöffí.Vísir/Stefán
„Þetta byrjaði nú sem léttur brandari í sumar þegar við keyptum um 20 pelsa á dyraverði og barþjóna en hefur verið að vinda svona skemmtilega upp á sig. Núna eru ótrúlega miklar líkur á að ef manneskja er í pels sé sú að koma á Pablo Discobar,“ segir hann.

Hafdís Þorleifsdóttir, Dísa í Gyllta kettinum, segir að áður fyrr hafi ekki margir karlmenn komið í búðina til hennar en nú séu þeir daglegt brauð. Hún hafi fengið jafnmarga karlmenn á undanförnum mánuðum og síðustu 12 ár.

„Þetta er víðar en á Íslandi því í New York eru menn að kaupa pelsa þannig að þetta er einhver tíska. Ég er eiginlega orðlaus sjálf en mér finnst þetta svo skemmtilegt.“

Hún segir að pelsar geti hentað hvaða týpu sem er. Þó er erfiðara að finna pels á vöðvamikinn dyravörð heldur en mjóan gest. „Karlmenn eru með meiri kröfur en við konurnar. Þeir vilja hafa þá síða og svolítið flöffí.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.