Lífið

Í milljón króna stígvélum í einkaþotu

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Beyoncé og Jay-Z á ferð og flugi.
Beyoncé og Jay-Z á ferð og flugi. Vísir / Skjáskot af Instagram
Tónlistarkonan Beyoncé deildi nokkrum myndum með fylgjendum sínum á Instagram þar sem hún sést stilla sér upp í hnéháum stígvélum frá Saint Laurent. 

Téð stígvél kosta hvorki meira né minna en tíu þúsund dollara, eða rétt rúmlega milljón króna, en þau eru skreytt með Swarovski-kristöllum.

 
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Dec 11, 2017 at 8:53pm PST

Á einni Instagram-myndinni stillir Beyoncé sér upp með eiginmanni sínum Jay-Z í einkaþotu hjónanna. Eins og sést var Jay-Z aðeins afslappaðri í klæðaburði, í jogginggalla og hvítum strigaskóm.

 
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Dec 11, 2017 at 8:54pm PST

Stutt er frá því að Jay-Z viðurkenndi að hafa haldið framhjá Beyoncé, en sögusagnir þess efnis hafa verið ansi háværar síðustu ár. 

„Það erfiðasta sem ég hef upplifað er að sjá sársaukan í andlitinu á þeim sem maður elskar og sá sársauki er þér að kenna. Maður þarf síðan að takast á við sjálft sig,“ sagði Jay-Z í viðtali við New York Times Style um framhjáhaldið og opnaði sig líka um af hverju þau Beyoncé væru enn saman.

„Flest allir taka auðveldum leiðina og ákveða að skilja. Ég held að fimmtíu prósent af öllum hjónaböndum endi í skilnaði, en ég held það sé útaf því að fólk er ekki tilbúið að horfast í augu við sjálfan sig.“

 
A post shared by Beyoncé (@beyonce) on Dec 11, 2017 at 8:55pm PST

Jay-Z, Blue Ivy og Beyoncé.Vísir / Getty Images
Heimildarmaður tímaritsins PEOPLE segir hins vegar að dóttir þeirra, Blue Ivy, sem í dag er fimm ára, hafi haldið þeim saman.

„Þau væru hugsanlega ekki saman ef Blue Ivy væri ekki til,“ sagði heimildarmaðurinn í viðtali við tímaritið fyrr í mánuðinum og bætti við:

„Það var erfitt fyrir þau að halda áfram að vera gift. Það tók Beyoncé langan tíma að treysta á ný. Hún átti erfitt með að halda áfram og fyrirgefa. En að halda fjölskyldunni saman var mjög mikilvægt.“

Hjónaband þeirra Jay-Z og Beyoncé virðist ganga vel í dag, en þau eignuðust tvíburana Sir Carter og Rumi fyrr á árinu. Þá fagnaði Beyoncé því í vikunni að hafa náð fyrsta sætinu á Billboard Hot 100-listanum með sína útgáfu af laginu Perfect með Ed Sheeran. Hún hefur ekki átt toppsætið á þessum lista síðan árið 2008 þegar Single Ladies af plötunni I Am… gerði allt vitlaust.

 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.